Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2002, Side 74

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2002, Side 74
Þjónustusíður Póls Kynnir tvenns konar nýjungar „Það sem við ætlum að leggja áherslu á að kynna á Sjávarútvegssýningunni er tvenns konar búnaður. Annars vegar fyrir uppsjávarfiskinn og hins vegar fyrir fiokkun bæði fyrir sjó- og landvinnslu," sagði Ellert Berg Guðjónsson markaðs- stjóri Póls i samtali við blaðið. „Fyrir þremur árum settum við á markaðinn pökkunarstöð fyrir uppsjáv- arfisk sem við þróuðum sérstaklega fyrir síld og makríl og markaðssettum í Nor- egi. Stöðin skammtar í 10 og 20 kílóa pakkningar með miklum afköstum, enda er það svo með uppsjávarfiskinn að þar þarf mikið magn að komast í gegn á stuttum tíma. Þar til við komum fram með þennan búnað þá gátu menn skammtað fimm til sex tonn per línu með nákvæmni upp á fjögur til fimm prósent. Við komum með alsjálfvirka skömmtunarvog sem skammtar 12 tonn á tímann með eins prósent nákvæmni í 20 kg. kassa. Við þróuðum þetta inn á norska markaðinn og núna erum við komnir með 70% af markaðinum í Nor- egi. Einnig erutn við komnir með sama hlutfall í Skotlandi og erum nú að kom- ast inn á írska markaðinn sem og í Bandaríkjunum og Suður-Ameríku,“ sagði Ellert ennfremur. En þar með er ekki öll sagan sögð: „Stærsta uppsjávarverksmiðja í heimi sem er í Færeyjum er með sex svona vél- ar og þeir anna þúsund tonnum á sólar- hring. Við höfurn ekki sýnt þessa pökk- unarstöð á íslandi fram til þessa og hún verður kynnt í fyrsta skipti hér á Sjávar- útvegssýningunni. “ Ný gerð af flokkurum og pokavél Ellert sagði að Póls hefði verið að þróa nýja gerð af flokkurum i samstarfi við Fiskvélar í Garðabæ sem verða kynntir á sýningunni. „Á Pólsstandinum verður til sýnis átta flokka flokkari með ýtnsum hliðarbúnaði fyrir minni fisk og bita. Á sýningarbás Eltaks verður önnur útfærsla fyrir hrá- efnismóttöku. Þetta er mjög skemmtileg græja því hún er byggð upp á einingum. Ef þú hefur þörf fyrir til dæmis þriggja flokka flokkara í dag, en þarft svo að fjölga þar sem vinnslan breytist og þarft fimm flokka þá gelur þú hringt í okkur og keypt tvo í viðbót. Það er afgreitt á hálfum mánuði og tekur tvo til þrjá tíma að bæta þessu við. Þetta er útfært eins og Legokerfi og er mjög öflugt kerfi. Menn lágmarka fjárfestinguna við þörfina í dag því það er svo auðvelt og kostar lítið að bæta við,“ sagði Ellert. Það er ýmislegt fleira sem þeir hjá Póls luma á og þeir fylgjast grannt með þörf- inni fyrir nýja tækni, til dæmis hvað varðar aukna áherslu á veiði og vinnslu á uppsjávarfiski. „Við erum að þróa nýja sjálfvirka pokavél fyrir uppsjávarfisk og Norð- menn, írar og Hollendingar hafa sýnt mikinn áhuga á að fá þessa vél um borð í skipin. Hún verður kynnt f nóvember og við vonumst til að hún verði komin utn borð 1 skip á þessu ári. Svo munum við kynna nýja pökkunarlínu fyrir bolfisk- og laxvinnslu með vídeói og myndum því við seldum sýningareintakið, það var kúnni sem gat ekki beðið. Þar er um að ræða sjálfvirka pökkunarstöð með skömmtun fyrir pakka í blokkir eða minni pakkningar. Við höfum alltaf tekið þátt í Sjáv- arútvegssýningunni og auk þess sem ég hef nefnt sýnum við það sem við höfum verið með í gegnum tíðina og leiðandi 1 sem eru skipavogin og vogir fyrir vinnslu. Veltuaukning Póls árin 2000/2001 var 45 prósent og fyrstu sex mánuði þessa árs er veltuaukningin 65 prósent. Það eina sem við erum ekki á- nægðir með að hlutfall sölu innanlands hefur dalað mikið. Árið 1999 var hún um 40 prósent, en í dag er hún um 5 prósent. Það virðist vera mjög erfitt fyrir fiskiðnaðinn hér heim að fá fjármögn- un,“ sagði Ellert að lokum. 74 - Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.