Náttúrufræðingurinn - 2004, Síða 19
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
6. mynd. Niðurbrot lúpínublaða í niðurbrotspokum í
lúpínubreiðu á Háamel í Heiðmörk við Reykjavík á tímabiiinu
nóvember 1991 til júní 1993. Meðaltal ± staðalskekkja, n=10. -
Decomposition oflupin leaflitter in mesh bags placed on the soil
surface in a lupin patch in Heiðmörk, southwest Iceland, from
November 1991 to June 1993. Average ± s.e., n=10.
7. mynd. Niðurbrot lúpínustöngla í niðurbrotspokum í lúpínu-
breiðu á Háamel í Heiðmörk við Reykjavík á tímabilinu
nóvember 1991 til júní 1993. Meðaltal ± staðalskekkja, n=10. -
Decomposition of lupin stetn litter in mesh bags placed on the
soil surface in a lupin patch in Heiðmörk, southwest lceland,
from November 1991 to June 1993. Average ± s.e., n=10.
maðka hafi flýtt niðurbroti sinunn-
ar þar sem mulin sina og ána-
maðkasaur innihalda meira af
næringarefnum en venjulegur jarð-
vegur og örveruvirkni verður því
meiri þar.13 Draga má þá ályktun að
lúpínusina, sérstaklega blöð, sé
mikilvæg fæðuuppspretta fyrir
ánamaðka sem flýta fyrir losun
næringarefna sem ella hefðu verið
bundin lengur í sinunni.
ÁNAMAÐKAR í LÚPÍNUBREIÐUM
Á Norðurlandi
Jarðvegssýni voru tekin í lúpínu-
breiðum á Norðurlandi, í lok
ágúst 1993, til að kanna magn og
tegundasamsetningu ánamaðka
þar. Fyrir valinu urðu: (a) lúpínu-
breiða í bæjarlandi Húsavíkur á
Skálamel, (b) breiða fyrir ofan
bæinn Hveravelli í Reykjahverfi
og (c) breiða á norðurhluta Hrís-
eyjar á Eyjafirði. Þrjú sýni voru
tekin inni í 15-25 ára gömlum
breiðunum, þar sem lúpínan var
ríkjandi í gróðurfari, og í jaðri
þeirra þar sem lúpínan var að
breiðast inn á ný svæði. Líkt og í
Heiðmörk var fjöldi ánamaðka
mestur í elsta hluta lúpínubreið-
anna. Við Húsavík var fjöldi ána-
maðka þar um 240/m2 og í Hrísey
um 360 /m2. Lífmassi ánamaðka
var rúmlega 10 g þurrvigt/m2 við
Húsavík en allt að 22 g þurr-
vigt/m2 í Hrísey. Til samanburðar
mældist fjöldi ánamaðka á Hvera-
völlum rúmlega 100/m2 og líf-
massi þeirra um 2,5 g þurrvigt/ m2
(3. tafla).
Fjórar tegundir ánamaðka
fundust í lúpínubreiðunum í Hrís-
ey og á Hveravöllum, þ.e. grááni,
svarðaráni, mosaáni og taðáni. I
lúpínubreiðunni við Húsavík
fannst auk þeirra stóráni, sem er
stærsta íslenska tegundin og lifir
yfirleitt í mjög frjósömum jarð-
vegi. Stóráni virtist dafna þar
mjög vel og var m.a. í talsverðum
mæli í jaðri breiðunnar og var
fjöldi egghylkja þar um 150/m2.
Stóráni hafði úr nægum efnivið að
moða enda var uppskera í lúpínu-
breiðunni 323-491 g/m2 og magn
sinu á yfirborði jarðvegs allt að
122 g/m2P Við Húsavík var stór-
áni ríkjandi tegund hvað varðar
fjölda, eða um 85 /m2, en hlutdeild
gráána var einnig töluverð, um
58 /m2. í Hrísey var taðáni ríkjandi
tegund, um 272/m2, en á Hvera-
völlum var mosaáni ríkjandi, um
43 /m2.
3. tafla. Fjöldi og lífinassi (*=g þurrvigt) ánamaðka og egghylkja í lúpínubreiðum við Húsavík, ofan Hveravalla í Reykjahverfi, á
norðanverðri Hrísey á Eyjafirði og á Kvískerjum í Öræfum. Meðaltal, n=3. - Number and biomass (**=g dry weight) of earthworms
and cocoons in lupin patches at Húsavík, Hveravellir and Hrísey, north Iceland, and at Kvísker, southeast Iceland. Average, n=3.
Aldur lúpínubreiðu Húsavík Hrísey Hveravellir Kvísker
Estimated age ofa lupin patch 20 ávahjears 25 áralyears 15 ára/years 32 áradyears
Fjöldi/m2 Number/m2 Lífmassi / * Biomoss/** Fjöldi/m2 Number/m2 Lífmassi/ * Biomass/** Fjöldi/m2 Number/m2 Lífmassi/ * Biomass/** Fjöldi/m2 Number/m2 Lífmassi / * Biomass/**
Egghylki /Cocoons 192 1,81 635 2,51 107 0,22 347 1,13
Ungviði / Juveniles 187 7,67 261 6,48 42 0,38 96 4,66
Fullorðin dýr/Adults 53 2,74 101 15,10 44 2,13 69 7,75
* Bjami Diðrik Sigurðsson, Borgþór Magnússon & Hólmfríður Sigurðardóttir 1993. Uppskera í lúpínubreiðum. Óbirt samantekt. Rannsóknastofnun landbúnaðarins.
17