Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2004, Page 56

Náttúrufræðingurinn - 2004, Page 56
Náttúrufræðingurinn 7. mynd. Tveir skálarjöklnr, hvor um sig innan við Vi ktn2, undir klettabrún í botni Seljalandsdals í Álftafirði, 8. september 2001. - Two cirque glaciers northwest of Gláma on 8 September 2001. Each of them is less than Vi km2 in area. Ljósm./Photo: Oddur Sigurðsson. ÝMSAR RANNSÓK.NIR Á GLÁMU OG HEILABROT Nú má huga að því hvort líkur séu til að Glámujökull hafi nokkurn tíma þykknað svo að hann hafi hnigið til á undirlagi sínu. Til marks um það má leita að jökulruðningi af ein- hverju tagi eða hvort vatnsföll hafi borið í sér jökulgorm. Það hafa menn tekið sér fyrir hendur. Winkler skri- faði um rannsóknir sínar á yfirborði Glámu og komst að þeirri niðurstöðu að enginn jökull hefði verið þar í langan tíma og sennilega ekki síðan ísöld lauk. í yfirlitsflugi höfundar um Vestfirði, 8. september 2001, var sérstaklega hugað að um- merkjum jökla á Glámu. Fannst þar enginn staður sem líklegur virtist til að hafa hýst jökul síðustu aldir. Var þá höfð til hliðsjónar samskonar athugun á fjallasvæðum kringum Eyjafjörð þar sem víðast mátti glöggt greina hvort hreyfing hefði verið á jöklum á undanfarinni öld. Slíka smájökla var hins vegar að finna norðan undir brúnum fjalla fyrir botni Álftafjarðar norðan Lamba- dalsfjalls (7. mynd) og er það í sam- ræmi við þá reynslu að jökla er víðast að finna á Norðurlandi móti norðri, einkum undir bröttum hlíðum eða hömrum. Á Vestfjörðum er Drangajökull nú um stundir eina undantekningin frá þessari reglu. Ekki eru menn sammála um hvort jökulgrugg hafi borist frá Glámu. Eggert Ólafsson segir jökulvabi koma bæði frá Dranga- jökli og Glámu. Þetta stangast á við fyrra rit hans, Enarrationes... þar sem segir: „En þar fyrir utan eru á íslandi mörg fjöll sem úr rennur, undir niðri, mikið vatnsmagn ef marka má rétta útreikninga. Sömu náttúru eru gædd tvö velþekkt íslands fjöll, þau hin mestu í Vest- firðingafjórðungi (Quadrans Occi- dentalis), Gláma og Snæfellsjökull. En þótt hið fyrra sé hvítt af gífurlegri fanndyngju sem breiðir úr sér þvert og endilangt, er samt ekki að merkja ofanjarðar nokkurt afrennsli fljóta, ef frá eru taldir fáeinir lækir" (þýðing Gottskálks Jenssonar úr latínu). Eggert finnur það sameiginlegt með Snæfellsjökli og Glámu að frá hvorugu renni ár að heitið geti. Skýringin á því er sú að mestallt leysingarvatn frá Snæfellsjökli hripar ofan í hraun o^ óþétt berg eins og Sveinn Pálsson gat sér til, en frá Glámu, sem að sönnu liggur á mjög þéttu bergi, kom engin jökla- leysing, enda ekki jökli þar fyrir að fara. Sveinn Pálsson hefur heyrt sagt að frá Glámu komi aðeins fáeinir lækir en engar stórár. Þar sé ekki vitað um hættulegar sprungur. Þangað kom hann aldrei sjálfur. 54

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.