Náttúrufræðingurinn - 2004, Page 80
Náttúrufræðingurinn
4. mynd. Mælingar á höfuðkúpum leiða ekkert í Ijós um greind eða persónuleika, en þær veita upplýsingar um hvar forfeðurnir hafi
lifað7
Nú geta menn líka sótt upp-
lýsingar úr hvatbera-DNA um það
hvort þeir séu komnir af víkingum
eða keltneskum forfeðrum á Orkn-
eyjum eða Suðureyjum. Sykes og
félagar hans eru nú að safna efni í
gagnagrunn, The Oxford Genetic
Atlas, sem á að hjálpa Bretum við að
komast að því hvort þeir séu komnir
af Bretónum, Söxum eða norrænum
víkingum.
Alheimsgagnagrunnur
Erfðafræðingar við Brigham Young-
háskóla í Salt Lake City í Utah safna
nú efni í alheims-DNA-gagnagrunn,
sem fullbúinn, eftir fáein ár, á að
geyma um 100.000 sýni. Til að fá
nafn sitt skráð í grunninn þurfa
mertn að geta rakið ættir sínar aftur
um fjórar kynslóðir. Þeir verða að
geta nefnt átta langalangalangafa og
jafnmargar langalangalangömmur
og vita hvar þau fæddust.
Gagnagrunnurinn, sem verður
opinn almenningi, mun einkum
nýtast bandarískum innflytjendum
sem misst hafa tengsl við gamla
landið. Með því að senda þangað
DNA-sýni geta menn komist að því
hvort forfeður þeirra og formæður
hafi til dæmis komið frá ákveðnum
hluta Rússlands, sem auðveldar
áaleitina auðvitað verulega.
Hausamælingar
Mælingar á lögun og stærð á
höfuðkúpum, ekki síst á innanmáli
þeirra, hófust með mannbótastefn-
unni (eugenics) á 19. öld. Upphafs-
maður stefnunnar, Francis Galton,
frændi Darwins, taldi að flest í fari
martna, og þar með gáfnafar, væri
arfgengt og mælanlegt og menn af
hinum ýmsu kynþáttum væru mis-
vel gerðir andlega. (Að sjálfsögðu
báru hvítir menn af, og í fremstu röð
þeirra voru breskir hástéttar- og
aðalsmenn.) Hugmyndir hans
breiddust brátt til annarra landa.
Þekktur og virtur franskur læknir og
mannfræðingur, Paul Broca, mældi
heila landa sinna í þeirri trú að rúm-
tak þeirra væri mælikvarði á gáfur
berendanna. Ein af röksemdum
Broca og fylgismanna hans fyrir
þessu var að konur hefðu minni
heila en karlar og eins og allir vissu
væru þær lakar gefnar.3, 4 Annað
heilafóstur Broca var „höfuðvísi-
talan" (cephalic index), hlutfallið
milli breiddar og lengdar höfuðkúp-
unnar, og þóttu hinir langhöfðuðu
norðurlandabúar og aðrir „aríar"
gáfaðri og æðri mönnum með styttri
haus, svo sem Finnum og Böskum.
Hámarki náði þessi vitleysa með
kynþáttakenningu þýskra nasista,
og verður raunar að vona að þeir
hafi tekið hana með sér í fallinu.
Ekki eru höfuðmælingar samt úr
sögunni. Bandarískur mannfræðing-
ur, William Howells, sem nú er á
níræðisaldri, hefur lengi talið að þær
geti reynst verðmætt rannsókna-
tæki. Árið 1987 birti hann árangur
mælinga sinna, sjötíu mælistærðir af
sérhverri af 2.500 hauskúpum
manna úr öllum hlutum heims.
Hausamælingar í þágu réttvísinnar
Ástralskur mannfræðingur og rétt-
arlæknir, Richard Wright, sá í
mælingum Howells tæki til að varpa
ljósi á uppruna ýmissa þjóða og
þjóðarbrota og á þjóðflutninga, auk
þess sem hann notar mælitæknina í
réttarlæknisfræði, við að bera kennsl
á lík sem ekkert er eftir af nema
beinin. Hann bjó til tölvuforrit,
CRANID, sem ber saman fólk frá
ýmsum tímum og stöðum út frá
höfuðmálum þess.
Ástralskur vísindafréttamaður,
Leigh Dayton, lýsir dæmi um
gagnsemi þessarar tækni í réttar-
læknisfræði.7
Fyrir rúmum tíu árum komu
byggingaverkamenn í Cardiff niður
á bein stúlku sem leit út fyrir að hafa
verið myrt. Höfuðkúpan var send á
Náttúrugripasafnið í Lundúnum,
þar sem Rob Kruszynski, starfs-
maður á mannfræðideild safnsins,
tók við kúpunni og færði 33 mæling-
ar af henni inn í CRANID-forrit.
Nokkrum mínútum síðar upplýsti
tölvan að höfuðkúpan myndi vera af
hvítri stúlku af blönduðum, bresk-
um og erlendum uppruna. Lögregl-
an fékk með þessu ábendingar um
líklegan hörunds- og háralit stúlk-
unnar og birti endurgerða mynd
hennar í fjölmiðlum. Nokkrum
dögum síðar kom í ljós að stúlkan hét
Karen Price, brotthlaupinn táningur
af velsku, kýpurgrísku, spænsku og
bandarísku kyni. Ekki fylgir sögunni
hvort morðinginn náðist.
78