Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2004, Side 81

Náttúrufræðingurinn - 2004, Side 81
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags Evrópa/Mi ðja rðarhafssvæði t Buriat, Síberíu Aríkarar, Dakóta Youyos, Perd . Santa Cruz-ey, Kalifomíu . Guam (Latte-tímabilið) Anyang, Kína . Filippseyjar . Hainan, Kína - Ainu, Hokkaido . Atayal, Taívan . Kyushu, Suður-Japan . Hokkaido, Norður-Japan . Inúítar, Grænlandi Páskaey Mokapu, Hawaii , Maoríar, Nýja-Sjálandi , Morioríar, Nýja-Sjálandi Suður-Ástralía . Tolai, Nýja-Bretlandi Tasmanía . Indland . Andamaney Búskmenn, Afríku i Teita, Austur-Afríku Zulu, Suður-Afríku Dogon, Vestur-Afríku Lundúnir (á miðöldum) Berg, Austurríki . Bedúínar, Vestur-Asíu . Lachish, Vestur-Asíu . Egyptaland (26.-30. konungsætt) Poundbury, Bretlandi (Rómverjar) Zalavár, Ungverjalandi Norðmenn 5. mynd. Fleiri en 30 mælingar á hverri af nærri 3000 höfuðkúpum leiða í Ijós sterkan svip með fólki af sama þjóðflokki eða frá sama stað. Ef gengið er tít frá því að líkamsgerðin endurspegli erfðaskyldleika, fæst þetta skyldleikatré með tölvuforriti, CRANID. Þegar mál f óþekkri höfuðkúpu eru færð inn í tölvuna, kemur hún með raðaðan lista með þeim 50 höfuðkúpum sem líkjast henni mest.1 2 3 4 5 6 7 Hausamælingar og uppruni þjóða Með hjálp nútíma hausamælinga, og einkum með CRANID-forritínu, geta menn aðgreint fólk af mismunandi kynþáttum, lífs eða löngu liðið (4. mynd). Einnig telja áhangendur tækninnar að með samanburði á höfuðlagi sé hægt að rekja innbyrðis skyldleika ýmissa mannflokka. Taflan á 5. mynd er fengin með töl- fræðilegri úrvinnslu á gögnum í CRANID-forriti. Nú er unnið að því að bæta í for- ritið gögnum um lifandi og löngu liðna menn, svo sem Lundúnabúa frá miðöldum, núlifandi og for- sögulegt fólk frá Suður-Asíu og frumbyggja Ástralíu. Stephen Hughes, læknir og eðlis- fræðingur við Queensland-tækni- háskólann í Brisbane í Ástralíu, hefur nýlega bætt við tæknina mælingum í tölvustýrðu sniðmyndatæki. Þetta nýtist til dæmis þegar skoða á leifar manna í líkkistum eða frystar í ís, og hvarvetna þar sem mikilvægt er vegna frekari rannsókna að eyðilegg- ja ekki klæðnað eða vefi. Hughes prófaði tækni sína með því að renna múmíu af fomri egypskri hofgyðju gegnum sniðmyndatæki - í kistu sinni og öðrum umbúðum. Þegar 27 mælistærðir af sniðmyndunum voru settar inn í nýjustu gerð CRANID- forritsins, upplýsti það snarlega að höfuðið væri af konu frá Egyptalandi hinu foma. Heimildir PÓSTFANG HÖFUNDAR / AUTH0r’S ADDRESS 1. Hamer, Mick 2002. Back to your Roots. New Scientist 16. mars. 2. Örnólfur Thorlacius 1997a. Gömul morðgáta upplýst. Náttúrufræðingurinn 67 (2). 3. Gould, Stephen Jay 1981. The Mismeasure of Man. W.W. Norton. 4. Örnólfur Thorlacius 1997b. Um menntun kvenna. Ný menntamál 15 (2-3). 5. Agnar Helgason, Sigrún Sigurðardóttir, Jayne Nicholson, Bryan Sykes, Emmeline W. Hill, Daniel G. Bradley, Vidar Bosnes, Jeffrey R. Gulcher, Ryk Ward & Kári Stefánsson 2000. Estimating Sandinavian and Gaelic Ancestry in the Male Settlers of Iceland. American Journal of Human Genetics. 67. 6. Agnar Helgason, Sigrún Sigurðardóttir, Jeffrey J. Gulcher, Ryk Ward & Kári Stefánsson 2000. mtDNA and the Origin of the Icelanders: Deciphering Signals of Recent Population History. American Journal of Human Genetics. 66. 7. Dayton, Leigh 2002. Return of the Skulls. New Scientist 23. febr. Örnólfur Thorlacius Hringbraut 50 107 Reykjavík Um höfundinn Örnólfur Thorlacius (f. 1931) lauk fil.kand.-prófi í líffræði og efnafræði frá Háskólanum í Lundi í Svíþjóð 1958. Hann var kennari við Menntaskólann í Reykjavík 1960-1967, Menntaskólann við Hamrahlíð 1967-1980 og rektor þess skóla 1980-1995. Samhliða kennslustörfum hefur Örnólfur samið kennslubækur og hann hafði um árabil umsjón með fræðsluþáttum um náttúrufræði í útvarpi og sjónvarpi. Hann var um skeið ritstjóri Náttúrufræðingsins. 79

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.