Náttúrufræðingurinn - 2004, Síða 81
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Evrópa/Mi ðja rðarhafssvæði t
Buriat, Síberíu
Aríkarar, Dakóta
Youyos, Perd
. Santa Cruz-ey, Kalifomíu
. Guam (Latte-tímabilið)
Anyang, Kína
. Filippseyjar
. Hainan, Kína
- Ainu, Hokkaido
. Atayal, Taívan
. Kyushu, Suður-Japan
. Hokkaido, Norður-Japan
. Inúítar, Grænlandi
Páskaey
Mokapu, Hawaii
, Maoríar, Nýja-Sjálandi
, Morioríar, Nýja-Sjálandi
Suður-Ástralía
. Tolai, Nýja-Bretlandi
Tasmanía
. Indland
. Andamaney
Búskmenn, Afríku
i Teita, Austur-Afríku
Zulu, Suður-Afríku
Dogon, Vestur-Afríku
Lundúnir (á miðöldum)
Berg, Austurríki
. Bedúínar, Vestur-Asíu
. Lachish, Vestur-Asíu
. Egyptaland (26.-30. konungsætt)
Poundbury, Bretlandi (Rómverjar)
Zalavár, Ungverjalandi
Norðmenn
5. mynd. Fleiri en 30 mælingar á hverri af nærri 3000 höfuðkúpum leiða í Ijós sterkan
svip með fólki af sama þjóðflokki eða frá sama stað. Ef gengið er tít frá því að
líkamsgerðin endurspegli erfðaskyldleika, fæst þetta skyldleikatré með tölvuforriti,
CRANID. Þegar mál f óþekkri höfuðkúpu eru færð inn í tölvuna, kemur hún með
raðaðan lista með þeim 50 höfuðkúpum sem líkjast henni mest.1 2 3 4 5 6 7
Hausamælingar og uppruni þjóða
Með hjálp nútíma hausamælinga, og
einkum með CRANID-forritínu, geta
menn aðgreint fólk af mismunandi
kynþáttum, lífs eða löngu liðið (4.
mynd). Einnig telja áhangendur
tækninnar að með samanburði á
höfuðlagi sé hægt að rekja innbyrðis
skyldleika ýmissa mannflokka.
Taflan á 5. mynd er fengin með töl-
fræðilegri úrvinnslu á gögnum í
CRANID-forriti.
Nú er unnið að því að bæta í for-
ritið gögnum um lifandi og löngu
liðna menn, svo sem Lundúnabúa
frá miðöldum, núlifandi og for-
sögulegt fólk frá Suður-Asíu og
frumbyggja Ástralíu.
Stephen Hughes, læknir og eðlis-
fræðingur við Queensland-tækni-
háskólann í Brisbane í Ástralíu, hefur
nýlega bætt við tæknina mælingum í
tölvustýrðu sniðmyndatæki. Þetta
nýtist til dæmis þegar skoða á leifar
manna í líkkistum eða frystar í ís, og
hvarvetna þar sem mikilvægt er
vegna frekari rannsókna að eyðilegg-
ja ekki klæðnað eða vefi. Hughes
prófaði tækni sína með því að renna
múmíu af fomri egypskri hofgyðju
gegnum sniðmyndatæki - í kistu
sinni og öðrum umbúðum. Þegar 27
mælistærðir af sniðmyndunum voru
settar inn í nýjustu gerð CRANID-
forritsins, upplýsti það snarlega að
höfuðið væri af konu frá Egyptalandi
hinu foma.
Heimildir
PÓSTFANG HÖFUNDAR / AUTH0r’S ADDRESS
1. Hamer, Mick 2002. Back to your Roots. New Scientist 16. mars.
2. Örnólfur Thorlacius 1997a. Gömul morðgáta upplýst.
Náttúrufræðingurinn 67 (2).
3. Gould, Stephen Jay 1981. The Mismeasure of Man. W.W. Norton.
4. Örnólfur Thorlacius 1997b. Um menntun kvenna. Ný menntamál 15
(2-3).
5. Agnar Helgason, Sigrún Sigurðardóttir, Jayne Nicholson, Bryan Sykes,
Emmeline W. Hill, Daniel G. Bradley, Vidar Bosnes, Jeffrey R. Gulcher,
Ryk Ward & Kári Stefánsson 2000. Estimating Sandinavian and Gaelic
Ancestry in the Male Settlers of Iceland. American Journal of Human
Genetics. 67.
6. Agnar Helgason, Sigrún Sigurðardóttir, Jeffrey J. Gulcher, Ryk Ward &
Kári Stefánsson 2000. mtDNA and the Origin of the Icelanders:
Deciphering Signals of Recent Population History. American Journal
of Human Genetics. 66.
7. Dayton, Leigh 2002. Return of the Skulls. New Scientist 23. febr.
Örnólfur Thorlacius
Hringbraut 50
107 Reykjavík
Um höfundinn
Örnólfur Thorlacius (f. 1931) lauk fil.kand.-prófi í líffræði
og efnafræði frá Háskólanum í Lundi í Svíþjóð 1958.
Hann var kennari við Menntaskólann í Reykjavík
1960-1967, Menntaskólann við Hamrahlíð 1967-1980 og
rektor þess skóla 1980-1995. Samhliða kennslustörfum
hefur Örnólfur samið kennslubækur og hann hafði um
árabil umsjón með fræðsluþáttum um náttúrufræði í
útvarpi og sjónvarpi. Hann var um skeið ritstjóri
Náttúrufræðingsins.
79