Náttúrufræðingurinn - 1979, Side 23
gjóskulagið þykkni í átt að hraunjaðr-
inum vegna þess að hann ltafi verið
nýtilkominn, þ. e. breyting á fyrra
landslagi, þegar það gjóskulag féll.
Landinu hallaði að hraunjaðrinum
áður en Köldungshól blés upp og því
var eðlilegt að gjóskan safnaðist í
kverkina. Einnig er hugsanlegt að
gjóskulagið hafi verið alveg nýfallið
þegar hraunið rann. Hvort heldur
sem er getur þetta svarta gjóskulag
verið E-1 og samanburður við snið 5
bendir eindregið til að svo sé. Rétt
er að skýra þetta aðeins nánar.
Gjóskulagið E-1 er úr nyrðri hluta
gossprungusveimsins en Álftavers-
hraunið úr þeirn syðri. Það hefur ver-
ið lengi að renna. Hafi gosið byrjað
á syðri hlutanum, eins og gerðist
á Lakasprungunni 1783, en báðir
hlutar síðan verið virkir samtímis,
getur verið eðlilegt að gjóskan úr
nyrðri hlutanum finnist beint ofan á
Alftavershrauninu á einum stað en
beint undir því á öðrurn.
Við Köldungshól er töluvert um
torfur sent rifnað hafa upp og flust
til. hær eru þunnar en heillegar og
flestar liggja lárétt. Eina þekkjanlega
gjóskulagið í þeim var ólífugráa lagið
og þæi' eru því yngri en frá 13. öld.
Torfurnar eru hvergi rauðseyddar
og er líklegt að Kötluhlaup hafi rifið
þær upp. Þessar torfur eru smáar og
fáar í samanburði við jarðraskið í
syðri bakka Skaftár sem áður er lýst.
Krosshóll er jökulalda á sama jökul-
garði og Köldungshóll og aðstæður
eru svipaðar að J>ví leyti að hraunið
leggst upp að honunt. Vatn hefur graf-
ið frá hraunjaðrinum og sér í rauð-
s:yddan jarðveg undir Jtví. Efsti hlut-
inn al honum er rofinn burt og grunn-
vatn hindraði allan frekari gröft. Ekki
tókst að ákvarða nein gjóskulög á þess-
unt stað.
Hæðarlækur heitir lækur skammt
norðvestan Hraungerðis og Þykkva-
bæjarklausturs. Við brúna rennur læk-
urinn á hrauni eða alveg í jaðrinum
Jtví að víða sér á fast hraun í farvegin-
urn. Snið 9 er tekið í allháum bakka
rétt neðan við brúna og blasir við af
veginum. í efri hluta sniðsins er jarð-
vegur með láréttum gjóskulögum og
fokröndum cn í neðri hlutanum sér í
jarðrask. Landnámslagið, VHa, er
næst efsta gjóskulagið í Jtessum
hreyfða jarðvegi. Ofan á honum er
óreglulegt, svart gjóskulag. Ekki er
ljóst hvort Jtað féll áður eða eftir að
raskið átti sér stað. Vegna vatnsborðs-
ins í Hæðarlæk var ekki unnt að
ganga úr skugga um hvort hraun næði
inn undir hreyfða jarðveginn.
Efst í hreyfða jarðveginum í sniði
9 er lag úr rauðu dusti. Þetta rauða
lag finnst líka í mýrarjarðvegi fram-
an við Álftavershraunið og er alltaf
í sama fleti miðað við Jrekkt gjósku-
h'ig, t. d. Vlla, landnámslagið. Ljóst
cr að Jaetta rauða lag stafar ekki af
beinum hitaáhrifum á jarðveginn og
Jtað á heldur ekkert skylt við mýrar-
rauða — ])að er rautt en ekki ryðlitt.
Líklegast virðist að Jretta sé áfok tengt
hraunrennslinu á einhVern hát't, e. t. v.
gervigígamynduninni — sé dust úr
rauðseyddu gjalli og jarðvegi. Það
virðist hafa myndað lag á jörðinni
framan við hraunjaðarinn á Jtessu
svæði og nær tiiluvert út frá honum.
Á Jtessum stað ýtti hraunið við jarð-
veginum og rauða lagið er efst í
honum.
Niðurstaðan af sniðum ofan á, und-
17