Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1979, Blaðsíða 29

Náttúrufræðingurinn - 1979, Blaðsíða 29
leyti (G. Gestsson, pers. uppl.). Að minnsta kosti eitt stórt Kötlugos varð á þessu tímabili, líklega urn 1500 (S. Þórarinsson, 1968). Gjóskan barst til vesturs og olli ekki tjóni á Mýrdals- sandi, urn hlaupið er ekkert vitað. Næstu hlaup þar á eftir, 1580 og 1625, virðast liafa gert usla á austursand- inurn (Ann. Isl. I, bls. 160, S. t. s. ísl. IV, bls. 200-215). Að lokum er hér lýsing á óþekktu íslensku eldgosi eða eldgosum úr Bók undranna, Liber miraculorum, skráð á árunum 1178—80 í Clairvaux klaustri í Frakklandi. Þýðingin er tek- in úr Heklueldum (S. Þórarinsson, 1968, bls. 26). Orðalagið í lýsingunni má túlka þannig að ekki sé átt við gos í hinni „hræðilegu fjallsgjá“ (Heklu), sem lýst er næst á undan. Svo virðist sem verið sé að lýsa bæði hraungosi og Kötlugosi í einu. Hafa má í huga við lesturinn að Katla gaus a. m. k. einu gosi á tímabilinu 950— 1050. Einnig má hafa í huga að á landnámsöld var skipafær fjörður inn með Hjörleifshöfða, sbr. frásögn af Hjörleifi og Eysteini Þorsteinssyni (ísl. fornrit I, bls. 43, 332). Goslýsingin í Liber miraculorum hljóðar svo: „Ekki skal þess ógetið, að þessi vítis- eldur brýzt stundum, þó að sjaldan sé, út yfir takmörk sín. Á vorurn tímum hefur það sézt einhverju sinni, að hann gaus upp svo ákaflega, að hann eyðilagði mestan hluta landsins, allt í kring. Hann brenndi ekki aðeins borgir og allar byggingar, heldur einnig grös og tré að rótum og jafn- vel sjálfa moldina með beinum sín- urn. Og þótt furðulegt sé frásagnar, bráðnuðu fjöll úr grjóti og jafnvel málmi algjörlega fyrir eldi þessum eins og vax, runnu yfir landið og þöktu það, svo að dalirnir umhverfis fylltust af leðjunni og fjalllendi jafn- aðist við jörðu. En bráðnu klettarnir, sem runnu út yfir allan jarðveginn í allar áttir, dreifðust síðan, þegar eld- inum slotaði, og þá varð yfirborð jarðar eins og úr marmara og eins og steinlagt stræti, og jörðin, sem áður var byggileg og frjósöm, varð að eyði- mörk. Þegar þessi ofsagrimmi eldur hafði eytt land þetta og allt, sem á því var, meðt óseðjandi græðgi sinni, jók hann við því enn skelfilegra undri, að hann réðst einnig á hafið við ströndina, og þegar hann kom út á hafsdjúpið, tók hann að brenna og eyða vatninu með fáheyrðum ofsa, allt niður á hyldýpi. Auk þess bar eldurinn með sér í flóði sínu gríðar- stór fjöll og hæðir, sem aðrir gráðugir eldslogar höfðu steypt um, svo að þar sem vatnið varð að láta undan siga, kom land í staðinn og fjöllin bárust út í hafsauga. Og þegar þau höfðu fyllt sjóinn algjörlega á löngu og breiðu svæði og gert hafsdjúpið jafnt sjávarströndu, varð sjórinn að þurru landi, svo að þar sem áður var vatn, varð nú fast land um 12 mílur og er ef til vill enn. Enn fremur eyddist í þessurn eldsbruna fræg borg og mann- mörg, en þar var ágæt höfn við fjörð, sem eyðilagðist þó, þegar sjórinn þurrkaðist upp.“ Þakkir Höfundur þakkar Sigurði Þórarins- syni og Sveini Jakobssyni yfirlestur handritsins og margar góðar ábend- ingar. Sérstakar þakkir eru færðar heimilisfólkinu í Ytri-Dalbæ, Herjólfs- 23
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.