Náttúrufræðingurinn - 1979, Blaðsíða 40
6. mynd. Geitungurinn Polisles gallicus
L., þerna (lengd 1,4 cm), safnað í Reykja-
vík 27. 9. 1968. — The paper wasp (Poli-
stes gallicus L.), a worker, collected in
Reykjavik 27. 9. 1968.
Það síðara (þerna) fannst í Kópavogi
29. 10. 1973 í vínberjum í vprslun
Kron við Álfhólsveg 32 (c/o Sigurður
H. Richter). Vínberin voru flutt í
verslunina úr birgðastöð viá Reykja-
víkurhöfn 18,—19. október. Ekki er
hægt að segja til um það ipeð vissu,
hvort geitungurinn hafi upphaflega
koniið til landsins með vínberjunum.
Tegundin er suðlæg, útbreidd við
Miðjarðarliafið, í N.-Afríku og Ev-
rópu norður til Belgíu, S.-Þýskalands
og Tékkóslóvakíu og austur um Asíu
til Tapans (Kemper & Döhring 1967;
Guiglia 1972).
Þessi tegund er auðþekkt frá hin-
um geitungstegundunum tveimur,
sem fundist hafa hér á landi, en er-
lendis eru allmargar tegundir sömu
ættkvíslar (Polistes), sem eru tor-
greindar frá henni. Hún er í megin-
dráttum svipuð Vespula tegundunum
á lit, svört með gulum röndum og
blettum, en fálmarar eru að mestu
gulir (svartir á Vespula). Fyrsti aftur-
bolsliður er rniklu mjórri en annar
liður (á Vespula er fyrsti liður aðeins
lítið eitt mjórri en annar). Þá er þessi
tegund nær nakin að sjá, hæringin
örfín og lítt áberandi.
Búin eru sérstæð. Þau eru lítil, að-
eins ein plata með mest um 100 hólf-
um og án umlykjandi skurnar (sjá
nánari skýringu síðar). Þau líkjast
mjög blómklasa körfublóma og standa
á stilk, sem festur er á steina, þar
sem skjóls nýtur, eða á trjágreinar
(Spradbery 1973; Chinery 1973). Þess
má geta til gamans, að fundist hefur
í Afríku (Tchad) bú ógreindrar teg-
undar af þessari ættkvísl, sem valinn
var staður á baki hægfara bjölluteg-
undar (Verstraeten 1976).
Engar líkur eru á því, að tegundin
nemi hér land, þar sem hún getur
ekki þrifist í svo köldu loftslagi.
Vespula germanica F.
Eins og fyrr var getið, fannst teg-
undin fyrst í Reykjavík í janúar 1937,
en Jsað var Geir Gígja, sem safnaði
því eintaki (Petersen 1956). Það ein-
tak hef ég ekki séð. Á Náttúrugripa-
safninu á Akureyri er varðveitt drottn-
ing, sem fannst þar í bæ veturinn
1967. Frekari upplýsingar vantar um
þann fund. Næst varð tegundarinnar
vart haustið 1973 við Menntaskólann
við Tjörnina, sem var til liúsa í gamla
Miðbæjarskólanum við Tjörnina í
Reykjavík. Um töluverðan fjölda geit-
unga var að ræða. Sóttu þeir nokkuð
inn í kennslustofur skólans, og fyrir
kom, að Jreir stungu. Er varla nokkur
vafi á Jiví, að þeir hafi átt bú þar
við skólann, þó að það hafi ekki fund-
ist. Á Náttúrufræðistofnun íslands er
varðveitt ein Jrerna, sem fannst inni
34