Náttúrufræðingurinn - 1979, Blaðsíða 54
cm
0-
SKYRINGAR - LEGEND
Katla 1485
Svínahraun
Landndmslagið
Hekla -3
Leita hraun
o o o o o o
Moldarjarðvegur
Loessial soil
Svört aska
Black tephra
MÓkenndur jarðvegur
Peat
Svínahraun - Lava
Ljós aska Acidic tephro
2. mynd. Jarðvegssnið við Svínahraun. Lengst til vinstri er ljósmynd af hluta jarð-
vegssniðsins og sést þar svarta öskulagið úr Kötlu 1485. Ljósa lagið neðar í jarðveg-
inum er landnámslagið. Teikningin sýnir allt jarðvegssniðið. — Soil profile from the
Svinahraun, showing black tephra from Katla 1485 and the light tephra from about
900 AD.
festu, svo liefur verið þegar Eldborg
gaus og er raunar enn í dag. Öskulög-
in eru þarna tiltölulega lítið hreyfð,
nokkuð jafnþykk og sýnast lítið hafa
fokið til. (2. mynd). Undantekning er
þó 11 cm þykkt öskulag ofarlega í
sniðinu en það er án efa sama svarta
öskulagið, sem er svo mjög áberandi
víðs vegar á Reykjanesskaga og kring-
um Reykjavík. Þetta öskulag er talið
vera frá Kötlu 1485 (Sigurður Þórar-
insson 1967). Sniðið er tekið undir
hraunbrún og hefur því askan vafa-
laust fokið nokkuð saman þar. Neðst
í laginu er um 3—4 cm þykkt, svart
lag, heillegt en ofan við það er askan
lítið eitt Ijósari á að líta og veldur
því sennilega það að þar liefur hún
blandast áfoki. Askan er úr brúnleitu
gleri, sem er tiltölulega þétt, ekki mik-
ið blöðrótt. Einstaka brot af plagio-
klaskristöllum koma fyrir í öskunni
og eins brot af nornaþráðum. Gler-
kornin eru áberandi stærri neðst í
laginu en efst. Ljósbrot í glerinu
reyndist 1.574. Rétt 4 cm neðar er
1,5—2 mm þykkt öskulag. Það er mun
grófara en Kötlu-lagið og glerið nokk-
uð ljósara, þétt, nær blöðrulaust og
talsvert um plagioklasdíla í því og
auk þess pyroxen. Ljósbrot glersins
reyndist 1.565. Neðan við þykka ösku-
lagið er jarðvegurinn mókenndur allt
niður úr. Um 10 cm neðan við þunna
svarta öskulagið er 2—5 cm þykkt
ljóst öskulag. Við athugun, í smásjá
kemur í Ijós að það er myndað úr
glæru (litlausu) og einnig nokkru af
brúnleitu gleri. Minnstu kornin eru
úr þéttu gleri en þau stærri sem geta
48