Náttúrufræðingurinn - 1979, Blaðsíða 25
teíkningín á 8. mynd er gerð eftir
mælingu á skurðbakkanum og er það
því mun mjórra en myndin gefur til
kynna. Hægt er að sjá í gegnum hvaða
gjóskulög ræsið var stungið — með
öðrum orðum er mögulegt að sjá
svona nokkurn veginn hvaða gjósku-
lög voru efst í jarðveginum þegar ræs-
ið var gert. Það voru Vlla og hugs-
anlega jjunna lagið ofan við það. llæs-
ið virðist hafa fyllst af gróðri, fyll-
ingin í jjví er úr svörtu mjúku efni
sem í eru stöngulför. Þá hefur verið
tyrft yfir jjað og sjást leifar af gjósku-
lagi í torfinu en ekki tókst að ákvarða
jjað. Allt gerðist þetta löngu áður en
ólífugráa lagið féll á 13. öld. Bakkar
ræsisins eru 1.2 m undir núverandi
yfirborði. Ekki tókst að mæla hversu
djúpt ræsið var jjar sem leðja hafði
safnast í hotn frárennslisskurðsins en
lágmarksdýpt var 85 cm.
Telja verður að ræsið, eða hvað
sem þetta mannvirki var, sé frá land-
námsöld. Með jjví að hera sniðið á
8. mynd saman við snið 6—10 á 4.
mynd sést að merki um mannvist í
Álftaveri eru af svipuðum aldri og
Álftavershraun — eða eldri.
NIE)URSTÖÐUR
Rannsókn á gjóskulögum í jarðvegi
ofan á, undir og við jaðra Landbrots-
Itrauns og Álftavershrauns hefur leitt
í Ijós að hraunin runnu skömmu eftir
landnám á fslandi.
Samkvæmt jarðvegssniðum í Skaft-
ártungu og við Ófærurnar var liin
eiginlega Eldgjá og gossprungan í
framhaldi af henni til suðvesturs (Gjá-
tindur—Svartahnúksfjöll) virk á sama
tíma. í Jjví gosi mynduðust bæði
hraun og gjóskulag, E-l. Telja verður
nokkuð öruggt að Landbrotshraunið
sé jjaðan runnið.
Eldgjárgjóskan barst til suð-suð-
vesturs, yfir það svæði sem Álftavers-
hraun rann um. Samkvæmt jarðvegs-
sniðum við austurjaðar Álftavers-
hrauns hefur gjóskan fallið um svip-
að leyti og hraunið rann. Ekki er þó
hægt að fullyrða að Álftavershraun
hafi runnið alveg samtímis Landbrots-
hrauninu. f Álftaveri finnast mann-
vistarleifar af svipuðum alclri og Álfta-
vershraun.
Þessar niðurstöður koma vel lieim
við frásögn Landnámu af jarðeldi sem
rann niður í Álftaver á landnámsöld.
Verður drepið á hana í kaflanum hér
á eftir. Þar kemur einnig fram að að-
stæður í Landbroti virðast hafa verið
aðrar, jjegar menn námu Jjar land, en
nú.
Vegna jjeirrar óvissu sem er um
raunverulegan aldur landnámslagsins,
VIIa+h, og annarra óvissujjátta, s. s.
varðandi jarðvegsþykknun á Jjessu
svæði á tímabilinu næst eftir að land
var numið, eru nákvæmir útreikning-
ar á aldri tilgangslitlir. Þó má glöggt
sjá að áratugir, e. t. v. 40—80 ár, hafa
liðið frá Jjví að landnámslagið féll Jjar
til E-1 og hraunin urðu til. Allar lík-
ur eru á að gosið hafi orðið á 10. öld
og með hliðsjón af Landnámu er lík-
legt að Jjað sé frá fyrri hluta hennar.
ÁBENDINGAR
í GÖMLUM HEIMILDUM
í Jjessum kafla verður drepið á
nokkur atriði í gömlum heimildum
sem snerta Jjær niðurstöður gjósku-
rannsóknanna að gos a£ sömu stærð-
19