Náttúrufræðingurinn - 1979, Blaðsíða 78
Ritfregn
Nfirrevang, Arne. 1977. Fuglefangsten pa
Fcerperne. 275 bls. 62 litmyndir, 47
svart-hvítar myndir, 28 teikningar og
2 línurit. Rhodos, K0benhavn. 19.555
ísl. kr. (23. 3. 1979). Á dönsku.
Þessi bók fjallar um sjófuglaveiðar í
Færeyjum og þær hefðir, sem myndast
hafa í kringum þær veiðar. Margt er skylt
með hefðbundnum fuglaveiðum Islend-
inga og Færeyinga, svo sem veiðitæknin
og hvaða fuglategundir hafa verið nytj-
aðar. Ég er því sannfærður um, að bókin
höfði til margra Islendinga,,
Fyrstu þrír kaflarnir fjalla um Færeyj-
ar, fortíð og byggðaskipan, að formálan-
tim slepptum. Þá er getið þeirra fugla-
tegunda, sem hefðbundnar nytjar hafa
myndast um, en þær eru: langvía, álka,
lundi, súla, skarfar, rita og áður fyrr geir-
fugl.
Rúmur helmingur bókarinnar fjallar
um eyjarnar eina af annarri. Mjög ýtar-
legar lýsingar eru gefnar á komutíma fugl-
anna og veiðistöðunum, skiptingu aflans,
veiðitímans og veiðistaða milli einstakra
veiðimanna og býla. Veiðitækjum, veiði-
aðferðum og nýtingu aflans eru einnig
gerð góð skil. Inn á milli er skotið ýms-
um sögum af veiðiferðum, málaferlum og
slysum.
Þá eru smákaflar um nýtingu fugla-
bjarganna til fjárbeitar og um hjátrú og
trúarvenjur.
Langur kafli fjallar um friðlýsingar
fuglabjarganna. Ástæður að baki þeim
eru raktar vandlega. I sér kafla er lýst,
hvernig menn bera sig að við veiðarnar,
og er einnig tækjunum lýst nákvæmlega.
Síðan er lýst, hvernig veiðiaðferðirnar
hafa þróast, eftir því sem kostur er. Tölur
um árlega fuglatekju í Færeyjum eru fá-
ar, en ljóst er, að veiðin hefur verið nokk-
ur hundruð þúsund fuglar á ári, þó að
sveiflur hafi verið miklar í eftirtekjunni.
í seinustu tveim köflum bókarinnar
leitast höfundur við að sýna, að með hefð-
um og þekkingu hafi veiðimennirnir um
aldir nýtt fuglabjörgin á skynsamlegan
hátt, þannig að um ofveiði hefur ekki
verið að ræða. Þessir kaflar eru slökustu
hlutar bókarinnar. Það hefði verið ástæða
til að fara nánar út í lifnaðarhætti teg-
undanna, enda þótt höfundur hafi fyrst
og fremst tekið sér á hendur að lýsa
hefðum fuglaveiðanna, áður en þær
hverfa.
Bókin er skrifuð á auðlesnu máli, þó
miklar tilvitnanir geri hana nokkuð sein-
lesna á köflum. Brotið er mjög stórt.
Ævar Petersen.