Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1979, Page 77

Náttúrufræðingurinn - 1979, Page 77
eyri gefið út. Ritstjóri hefur frá upphafi verið Hörður Kristinsson grasafræðingur. Verð Jressa heftis er kr. 3.000.— og er hægt að panta Jiað frá Náttúrugripasafn- inu á Akureyri. Heftið er 72 síður og er allt skrifað á cnsku. Meginefni Jjess er grein upp á 62 síður um Jrörunga sem lifa í og á jarð- vegi, einkum rökum jarðvegi, á Glerárdal, eftir Paul A. Broady, Háskóla Newcastle upon Tyne, Englandi. Þar er um 200 teg- unda [ressara smásæju lifvera getið og Jreim lýst nokkuð, en á þessu sviði hefur lítið verið aðhafst liér á landi og mikið verk er Jrar enn óunnið víðs vegar um land. Tvær greinar til viðbótar eru í lieftinu. Hörður Kristinsson hefur tekið saman sjö síðna skrá yfir nýlega skrifaðar ritgerðir um íslenska grasafræði, eftir innlenda og erlenda höfunda. Þetta er fjórða skráin af þessu tagi, sem Hörður hefur gert, og hafa Jrær allar birst í þessu sama riti, en í henni cr getið 108 ritgerða sem á einhvern hátt snerta íslenskar plöntur eða gróður- far. I síðustu grein ritsins er lýst nýrri unda- fífilstegund úr Fljótshlíð, og er sú grein eftir Ingimar Óskarsson. Eyþór Einarsson. Birki fundið í Hornvík í grein sem birtist í 45. árg. Náttúru- fræðingsins (Eyjrór Einarsson, 1975) gat ég Jrcss að birki (Betula pubescens Ehrh.) væri ekki algengt á Hornströndum. Aust- antil hefði Jrað ekki fundist norðar en í Barðsvík, en vestantil yxi [rað með vissu í Rekavík bak Látur og ekki væri ósenni- legt að það yxi einnig í Fljótum. Aftur á móti taldi ég vafasamt, að birki hefði nokkurn tíma vaxið á svæðinu milli Fljótavíkur og Barðsvíkur, Jjar væri hrein- lcga komið norður fyrir útbreiðslumörk Jress hér á landi. Síðastliðið sumar fór ég nokkuð um Hornstrandir og bætti ýmsu við vitneskju mína um svæðið frá Hornvík suður til Reykjafjarðar. Það sem mér þótti einna nrarkverðast var gróskumikil laut í hlíð- inni rétt utan Víðirsár í vestanverfjri Hornvík, því í Jreirri laut óx m. a. birki, en Jró ég hefði komið fimnr sinnum áður í Hornvík hafði mér sést yfir þessa fögru birkilaut. Hún er í um það bil 60—70 nr hæð yfir sjávarmáli, í allbrattri hlíð og veit mót austri; breidd hennar er 3—4 m en hún er nokkru meiri á hinn veginn. Birkið í lautinni var álíka hávaxið og Jrað birki sem ég hef séð í öðrum áþekk- um lautum, og sagt er frá í áðurnefndri grein í Náttúrufræðingnum, [rað náði rétt upp fyrir barma lautarinnar og virtist Jrannig ekki vera hærra en það að snjór nái að hlífa Jrví á vetrum. Aðrar tegundir sem Jrarna bar mest á voru blágresi (Ger- anium sylvalicum), brennisóley (Ranun- culus acris), maríustakkar (Alchemilla), bugðupuntur (Deschampsia flexuosa), ilm- reyr (Anthoxanthum odoratum), finnung- ur (Nardus stricta), aðalbláberjalyng (Vac- cinium myrtillus), gulvíðir (Salix phylici- folia) og smjörgras (Bartsia alpina), en nokkrar fleiri tegundir blómplantna uxu Jrar. Þrátt fyrir nokkra leit fann ég ekki birki nema í þessari einu laut [jarna í hlíðinni. Af framansögðu er ljóst, að varla er hægt að tala um nokkur norðurtakmörk birkis hér á landi, að minnsta kosti ekki á Hornströndum, úr því birki vex í Horn- vík. En Jjað er jafnframt augljóst, að á þessum norðlægu slóðum þrífst birkið ein- ungis í skjólgóðum og gróskumiklum laut- um, þar sem snjórinn hlífir Jjví yfir vet- urinn. 71 Eyþór Einarsson.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.