Náttúrufræðingurinn - 1979, Blaðsíða 47
Mikael Jeppson
Tveir belgsveppir fundnir
á Islandi
(íslenskir belgsveppir IV)
Sumarið 1977 gafst mér tækifæri til
að athuga nokkra belgsveppi í sveppa-
safni Náttúrugripasafnsins á Akur-
eyri. Við þá athugun komu í leitirnar
tvær tegundir, sem ekki hefur verið
getið frá íslandi áður, þ. e. Bovista
cretacea Th. C. E. Fr. af físisveppa-
ætt (Lycoperdaceae) og Niclularia
farcta (Pers.) Fr. af hreiðursveppaætt
(Nidulariaceae).
Nánari lýsing á þessum tegundum
og fundarstöðum þeirra fer hér á eftir.
Greinin er hugsuð sem framhald á
greinaröð Helga Hallgrímssonar um
íslenska belgsveppi, sem birst hefur í
Náttúrufræðingnum 1963 og 1972.
Nánari upplýsingar um gerð belg-
sveppa og flokkun er að finna í þess-
um greinum.
Bovista cretacea Tli. C. E. Fr.
(Mýreldur eða mýrakúla)
Aldinið er kúlulaga, 1,5—2,0 cm í
þvermál, oft dálítið flatt að ofan.
Ógróbær hálshluti (undirgyrja) eng-
inn eða mjög lítill. Útbyrðan snjó-
hvít í fyrstu, með smávörtum eða
kornum, sem síðan hverfa, en sitja þó
sums staðar eftir sem smá, gulhvít,
kringlótt korn eða stakir örsmáir
broddar. Innbyrðan pappírskennd,
verður mött, Ijósbrún eða bronsbrún
við þroskann. Aldinið opnast með
toppstæðu gati, sem hefur meira eða
nrinna reglulega munnflipa. Gyrjan
(gleba) er hvít í fyrstu og ostkennd,
en verður gulbrún og duftkennd við
þroskann (aldrei purpurabrún eins og
hjá B. nigrescens). Gróin eru kúlu-
laga, 4,5—5,1 pm í þvermál (í lacto-
fenóli), með örsmáum vörtum og glær-
um hala sem er allt að 13 pm á lengd
(1. mynd, a). Kapilluþræðirnir gul-
brúnir, af Bovista-gerð, þ. e. a. s. þykk-
veggjaðir með greinilegum aðalstofni
(allt að 10 pm í þvermál) og fram-
mjóum greinum sem enda í oddi.
Þverveggir koma fyrir í kapilluþráð-
unum (1. mynd, b). Vex í ýmiss konar
raklendi, oftast i þyrpingum.
Bovista cretacea minnir nokkuð á
Bovista nigrescens (kerlingareld), sem
er algeng á íslandi (Helgi Hallgríms-
son 1963), en er verulega minni og
innbyrðan og fullþroska gyrja eru
með öðrum lit. Gróin eru líka með
Náttúrufræðingurinn, 49 (1), 1979
41