Náttúrufræðingurinn - 1979, Page 74
rV> -
V ■^cr
r 5*—: ‘ ~ h •: . • - ,
- — 7 ■■ ■- >-2.: :r~%sríí$8*r'
J
§ mi'W' fisði . *.Á. »' í '¥:■' J:
' .
4. mynd. Sandöldur á landgrunninu suður a£ Kötlutanga. Bilið á milli staðsetningar-
punkta (105 og 106) er ein sjómíla. Af því má sjá að öldulengd er að meðaltali um
175 metrar. Olduhæðin er hins vegar um 10 metrar. Hér er þvl engin smásmíð á ferð.
(Ljósm. H. Þ.) — Sand waves o(f southern Iceland with a wavelength of about 115
metres and a height of about 10 melres. The waves occur in water depths of 100—120
metres.
gefur mynd af hafsbotni má nota
hana til leitar að hlutum á botnin-
um, t. d. skipsflökum, sæstrengjum og
fleiru. í leiðangri Árna Friðrikssonar
fyrri hluta árs 1978 var í tilrauna-
skyni siglt meðfram vatnsleiðslunni,
sem liggur milli Heimaeyjar og lands.
Útskrift úr þeirri mælingu er sýnd á
3. mynd.
I>á er botnsjáin vel til þess fallin
að kanna ýmis jarðfræðileg fyrirbrigði
á hafsbotni. Á 4. mynd eru t. d. sýnd-
ar geysistórar sandöldur, sem liggja
á landgrunninu suður af Hjörleifs-
höfða eða Kötlutanga. Þessar öldur
mynda mjög reglulegt mynstur á dýpt-
armælispappír og nefna sumir sjó-
menn jjetta svæði „Sagarblaðið“.
Sandöldur af þessari stærð hafa
fundist á nokkrum landgrunnssvæð-
um, og þá helst þar sem sjávarfalla-
straumar eru sterkir, t. d. við Bret-
landseyjar. Öldurnar eru myndaðar
úr sandi, eins og nafnið bendir til,
og eru víðast hvar taldar vera á hreyf-
ingu undan sjávarfallastraumunum.
Sú hreyfing þarf þó ekki að vera sam-
felld, heldur gjarnan talin verða við
þau skilyrði er stórar úthafsöldur
leggjast á sveif með sjávarföllunum
og mynda óvenju þunga strauma.
Sandöldurnar á 4. mynd eru ekki
08