Náttúrufræðingurinn - 1964, Síða 25
NÁTT Ú RUFRÆÐINGURIN N
19
halla Baldheiðar. Hún verður mjög glögg við austurrætur Hrút-
l'ells og er þar á kafla mörkuð í fast berg. Og loks er hún skýrt
mörkuð í allbratta mela, þar sem heita Þverbrekkur (ranglega
nefndar „Múlar“ á Uppdr. ísl.).
Eins og þegar hefur verið lýst, eru strandlínurnar á Kili yfirleitt
heldur dauft markaðar og gela með því í skyn, að ekki hafi vatns-
borð hins forna jökullóns haft langa viðdvöl við hverja þeirra. Þess
er ekki heldur að vænta um lón, sem er haldið uppi af jökulstíflu,
breytilegri eftir árlerði.
Efsta strandlínan (630 m y. s.) er einna gleggst, og er freistandi
að ætla, að lónið hafi haft afrennsli ylir einhvern bergþröskuld,
meðan hún var í smíðum. Grunur hlýtur að falla á sjálf vatnaskil-
in á Kili.
Samkvæmt hæðarlínum landlagskortanna mætti ætla, að þessi
vatnaskil lægju um Strýtur í Kjalhrauni (840 m y. s.) og væru lægst
við austurjaðar þessarar hraundyngju, um 650 m y. s. Þetta er um
20 m of hátt, til að afrennsli jökullónsins liafi getað verið þar. En
þá ber þess að gæta, að Kjalhraun rann ekki fyrr en eftir ísaldar-
lok og vatnaskil þeirra tíma liggja nú grafin undir því. En raunar
er hraunið ekki vatnshelt, fremur en önnur nútímahraun, og þess
vegna liggja hin raunréttu vatnaskil á Kili enn eins og fyrir daga
Kjalhrauns. Þau eru aðeins falin mi og verða ekki mæld með venju-
legri landmælingu. En gizkað getum við á legu þeirra og hæð —
og höfum þar við nokkuð að styðjast:
Undan norðurjaðri Kjalhrauns sprettur upp mjög lítið vatn,
aðeins smálindir, varla nema fáeinir sekúndulítrar, sem renna til
lækjarins Þegjanda. IJm suðurjaðarinn er ólíku saman að jafna.
Þar spretta upp Svartá og Tjarná, báðar nær eingöngu úr hraun-
inu, en auk þeirra margar lindir í bakka Fúlukvíslar, og hlýtur það
rennsli samanlagt að nema þó nokkrum rúmmetrum á sekúndu. —
Með þessum samanburði er sýnt, að mjög óverulegur hluti af Kjal-
hrauni liggur fyrir norðan hin eiginlegu vatnaskil, og það er aftur
vísbending um, að þau liggi ekki miklu hærra en lægsta tota norð-
urjaðarins, sú sem bílaslóðin sveigir fyrir um 3 km austur frá
Hveravöllum og 2 km norðvestur frá Rjúpnafelli. Hæð þess staðar
er (samkv. kortum) um (ilO m y. s. Höfum við þá komizt að raun
um, að hið forna vnrp (þ. e.' lægsti staður vatnaskila, austfirzka) á
Kili liggur lægra en 650 og hærra en 610 m y. s. Eru þá líkumar