Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1964, Side 9

Náttúrufræðingurinn - 1964, Side 9
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 103 2. mynd. Vesturbakki Þjórsár hjá Þjórsárbrú. — I: sandhella og möl, hálf- hörðnuð áreyri. II: mór, yfirborðslag hans aldursgreint. III: Þjórsárhraun. IV: urð, ættuð úr hrauninu. V: gróinn jarðvegur. VI: mannvirki, vatnsból. Section of the right bank of Thjórsá. — I: River gravel. II: Peat (radiocarbon dating from top-layer). III: Thjórsá Lava. IV: Talus, blocks fallen down from the lava-edge. V: Soil. VI: Artificial wall. en bauðst samt til að aldursgreina fyrir mig annað sýnishorn til frekara öryggis. Því boði tók ég feginsamlega, og sendi nú aðeins 4 cm þykka flögu, tekna af yfirborði mólagsins 28. okt. 1959. Ári síðar barst mér niðurstaðan: 8170 ± 300 ár. Niðurstöður beggja CH greininganna eru að kalla ein og hin sama, því að miklu minna ber á milli en nemur þeirri skekkju, sem rannsóknarstofan gefur upp, að greiningaraðferðin kunni að hafa í för með sér. Þjórsárhraun, sem þarna hefur runnið yfir mýri, er vitanlega ívið yngra en efsta lag hennar, en sá rnunur nemur vart meira en nokkrum áratugum eða einni öld. Getum við því haft fyrir satt, að það hafi runnið fyrir mjög nálægt 8 þúsund- um ára (Guðm. Kjartansson 1958 og 1960). Vegna þess hve Þjórsárhraun er víðáttumikið og í snertingu við margar aðrar jarðmyndanir, t. d. önnur hraun, er aldursákvörðun þess mikilvæg fyrir jarðsögu alls héraðsins. Af henni getum við

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.