Náttúrufræðingurinn - 1964, Qupperneq 31
NÁTTÚ RUFRÆÐINGURINN
125
tilliti til þess, hve auðvelt er að beita þar öskutímatali, þar sem
bæði Heklulagið frá 1104 og Öræfajökulslagið frá 1362 er þar að
finna.
Viðarkol úr brúnu vikurlagi í Rangárbotnum (15)
2660 ± 80 ár (St. 814)
í þeirri 11 m djúpu bolu í Rangárbotnum, sem áður var nefnd,
var grábrúnt vikurlag 33 cm þykkt, 23 cm ofan við H3 en á milli
þessara laga var foklag, aðallega úr H3 með tveimur svörtum ösku-
lögum í (9. mynd, Cd 50). í grábrúna vikurlaginu voru kögglar
allt að 5 cm í þvermál og neðantil í því lagi var talsvert af smá-
um viðarkolamolum, og virðist sem þarna liafi verið eittbvert
kjarr, er þetta vikurlag féll. Er vikurlagið vafalítið úr Heklu, og
má rekja J:>að vestur um Landssveit og norðvestur um Hreppa.
Við Haukur Tómasson sendum viðaikol úr Jjessu lagi til aldurs-
ákvörðunar í Stokkliólmi, samtímis kolum úr H3 og borgaði Raf-
orkumálaskrifstofan einnig Jressa aldursákvörðun. Getur komið sér
vel að bafa Jretta lag aldursákvarðað í sambandi við gróðursögu-
og jarðvegsmyndunarrannsóknir á svæði því, sem Jsað nær yfir, en
útbreiðsla Jress hefur ekki verið kortlögð enn.
Mór úr Seltjörn á Seltjarnarnesi (3)
9030 ± 280 ár (Y-247)
8780 ± 150 ár (H 404/370)
Árið 1954 tók ég sýnishorn af eðjubornum mó, sem er neðst
í fjörumólaginu í Seltjörn (9. og 12. mynd) og Jrví myndaður rétt
eftir að land reis þarna úr sjó. Sýnishornið sendi ég til Yale og gaf
aðeins upp, að aldurinn væri meiri en 5000 ár. Var aldursákvörðun-
in birt, ásamt sniðum er sýna legu sýnisbornanna, í ritgerðinni
Mórinn í Seltjörn. Nfr. 1956, bls. 185—186, en í sama befti Nfr.
birtust einnig ritgerðir um Jrennan mó eftir Þorleif Einarsson og
Jón Jónsson.
Þessi aldursákvörðun mátti teljast mjög þýðingarmikil fyrir sögu
afstöðubreytinga láðs og lagar á póstglasíal tíma. Þess vegna þótti
öruggast, að treysta ekki á eina aldursákvörðun. Við Þorleifur
Einarsson tókum Jrví annað sýnishorn af neðsta mólaginu í Seltjörn,