Náttúrufræðingurinn - 1964, Síða 54
148
NÁTTL) RUFRÆÐINGU RINN
sem er næmt að eðlisfari, verða afkvæmi þeirra að jöfnu næm og
ónæm, 50% : 50%.
Þegar þessi erfðafræðilega þekking var fengin, þá var hægt að
skipuleggja ákveðið kynbótakerfi, sem byggist á úrvali ónæmra
einstaklinga og æxlun þeirra aftur við annað upphafsforeldri sitt,
5. andigenum.
Ónæmið, sem er í S. andigenum og flutt hefur verið yíir í bast-
arðana, virðist stafa af eiturefnum, sem ræturnar gefa frá sér og
valda því, að lirfurnar drepast í jarðveginum. í nokkrum tilfellum
liafa lirfurnar komizt inn í korklag rótanna, en ekki náð að þrosk-
ast og dáið út. Þá fundust og nokkur kvendýr, sem náð höfðu
talsverðum þroska og myndað lmúða, en þegar þeir voru rann-
sakaðir, voru í þeim ófrjó egg. Einnig getur verið, að ónæmu jurt-
irnar gefi frá sér efnasambönd, sem í vantar eitt eða fleiri efni nauð-
synleg fyrir lirfurnar til að ná eðlilegum þroska. í þessu sambandi
var gerð tilraun með að græða ónæmar jurtir á næmar jurtir og svo
öfugt. Niðurstaðan varð sú, að yfirvöxturinn hagaði sér alveg eftir
eðlisfari rótanna.
Hnúðormar voru taldir á nokkrum tilraunareitum til þess að
fá vitneskju um fjölda þeirra. Sýnishorn voru tekin úr reitum, þar
sem ónæmir stofnar voru ræktaðir í tvö ár og úr reitum, þar sem
gulrófur voru ræktaðar í eitt sumar, en áður liöfðu kartöflur ver-
ið ræktaðar í þessum reitum í mörg ár. Þá voru sýnishorn tekin úr
reitum, þar sem engin jurt var ræktuð, sem sagt, ormarnir voru
sveltir. í gulrófnareitunum reyndust 12% fleiri ormar miðað við
ónæmisreitina og 16% fleiri ormar í reitum, sem engin jurt óx í,
miðað við ónæmisreitina.
Þess er áður getið, að hjá hnúðormum er kynæxlun. Þess vegna
má búast við, að af hnúðormum séu til fleiri en einn stofn. Að svo
komnu hafa erfðir kartöflulmúðorma lítið verið rannsakaðar. Vel
má hugsa sér, að við æxlun hnúðorma geti komið fram nýir stofnar,
sem myndazt hafa við kynerfðir eða stökkbreytingu og valda sjúk-
dómum í þeim kartöflustofnum (klónum), sem nú hafa mótstöðu
gegn hnúðormunum.
Rannsóknir, sem gerðar hafa verið á Gamla-Hrauni á Eyrarbakka
í hnúðormaveikum garði, sýna að nú eru til 4 bastarðar (stofnar)
af kartöflum, sem hafa mikla mótstöðu gegn kartöfluhnúðorm-
um, gefa góða uppskeru og eru sæmilegar matarkartöflur.