Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1933, Page 10

Náttúrufræðingurinn - 1933, Page 10
104 nAttCjrufr. smákrókar, aftast á neðanverðum afturbolnum, halda hon- um fast á hárinu. — Nú kemur egginu límlag það, sem um það er, að góðu liði, það límist við hárið, og fósturþró- unin fer að byrja. (Sbr. 5. mynd). 1 egginu er tvennskon- ar efni, efni sem verður að fóstrinu, og svo forðanæring, sem fóstr- inu er ætluð til næringar á meðan á klakinu stendur. Fyrst í stað er fóstrið lítið og fábrotið. En áður en langt um líður, fara að mynd- ast fætur og önnur líffæri, og loks kemur að því, að lúsarunganum finnst nóg um þrengslin í eggskurninu, lyftir lokinu, er lokar egg- inu að ofan, og skríður út (7. mynd). Ekki er unginn lengi búinn að leika lausum hala, þegar sulturinn fer að sverfa að. Varla er lið- in hálf klukkustund frá því hann kom í heiminn, þangað til byrjað er að bora gat á húðina, og sjúga blóð af öllum kröftum. Eftir ör- stutta stund er unginn þembdur af rauðu blóði, sem skín í gegn um hina þunnu og hálfgagnsæu húð. Nú taka meltingarfærin til starfa, því ekki er síður þörf að gæta fengins fjár en afla, og eftir stutta stund er allt melt, sem melt gat orðið, en hitt, sem ekki varð að notum, gengur niður af dýrinu sem ofurlitlar saurkúlur, og verður eftir í hári og fötum, eins og svartir deplar. Ekki þarf lús- arunginn að svelta, því nóg er að bíta og brenna. Hvað eftir annað sting- ur hann „nægtar- horninu“ í jörð nið- ur, og teigar af al- efli allt, sem hann getur torgað. Hann vex óðfluga fyrst í stað, en þegar liðið er á þriðja sólar- hring, frá því hann kom úr egginu, o. myud. Egg (nit) af lúsategundum inannsins. A flatlús, B höfuölús og C fatalús. Stækkaö 33 sinnum (Licberkind). hægir vöxtinn mjög, því líkaminn er að utan þakinn all- hörðum ham, sem lítið getur tútnað út, en að þessu leyti sver lúsin sig í ættina til allra annara skordýra, því öll hafa þau kítín-ham um likamann. Á þriðja degi rifnar þessi hamur, unginn skríður út, en jafnskjótt byrja kirtlar í húðinni að smita frá sér efni, sem brátt vcrður að nýjum ham, en á meðan hann er að harðna, lætur lúsin einskis ófreistað að því er mataræði viðvíkur, hún vex óoflugu,

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.