Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1934, Side 12

Náttúrufræðingurinn - 1934, Side 12
4 NÁTTÚRUFR. Margan mundi nú fýsa að vita, hvenær von sé á næsta Kötlugosi. Því er eigi unnt að svara með neinni vissu. Þess má þó geta, að flest eldfjöll, einkum goskeilur, hafa sinn „með- göngutíma“, líkt og hverirnir, og er hann venjulega nokkurn- veginn jafnlangur, þó að vitanlega geti út af brugðið. í þessu efni virðist Katla eigi vera nein undantekning. Síðan um siða- bót má telja öruggt, að til séu skýrslur um öll gos hennar, svo að ekkert sé undan dregið, og hafa þau orðið á þessum árum: 1580, 1625, 1660, 1721, 1755, 1823, 1860 og 1918. Skemmstur tími milli gosa hefir þannig orðið 34 ár og lengstur 68, en með- allag er um 48 ár. Eftir þessu ætti næsta gos að verða á árunum 1952—1986, en að mestum líkindum milli 1960 og ’70. En ef betur er aðgætt, virðast gosin hafa tvennskonar tíðni (rytmus). Síðan 1625 hafa í annaðhvort sinn liðið 34—37 ár (meðallag 35 ár milli gosanna), en í hin skiptin 58—68 ár (meðallag 61 ár). Samkvæmt því ætti næsta gos að verða um 35 árum eftir það síðasta, eða um 1953. Varlega skyldu menn þó treysta þess- um útreikningi, enda keniur naumast til þess. En hitt má telja líklegt, að áður en langir tímar líða, geti menn sagt fyrir ýms eldgos með sæmilegri nákvæmni, líkt og veður nú. Loks skal þess getið, að síðasta Kötlugos var hið 14. í röð- inni, eftir því, sem Þorvaldur Thoroddsen telur. Talan er þó engan veginn örugg, því að sagnir eru svo óljósar um sum hin eldri gos, að ekki er unnt að ákvarða þeim stað með fullri vissu. Hitt má og vera, að ekki hafi komið öll kurl til grafar, og séu gosin orðin fleiri en 14 frá því á landnámsöld. PóXmi Hannesson. Spói í vetrarvist á Islandi. Svo hefir sagt mér skilríkur maður, Jón Ingimar Jónas- son frá Bólu í Skagafirði, nú til heimilis á Akureyri, að á bú- skaparárum hans, kom það eitt sinn fyrir, að ungur spói, sem líklegast hefir orðið fráskila farand-spóum, lifði af heilan vetur þar í Skagafirðinum. Hélt hann sig alltaf að sömu bæj- unum og kom oft heim á þá, til að tína úr moði o. þ. h. En um það leyti, sem farfuglar fóru að koma um vorið, hætti hann heimsóknum sínum. Um sumarið verpti spói nálægt túnjaðr- inum i Bólu, og getur Jón þess til, að það muni ef til vill hafa verið veturvistar-spóinn, því að svo var hann gæfur. Sigurður Kristinn Harpann.

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.