Náttúrufræðingurinn - 1934, Qupperneq 18
10
NÁTTÚRUFR.
aðeins einnar hefir orðið
vart seinna, í iebrúar. —
Frá Englandi haia einnig
heimtzt nokkrar, þó ekki
eins margar og irá írlandi
og Skotlandi, aðallega að
haustlagi, engin að vetri
til, en á hinn bóginn tvær
að vorlagi. Auk þeirra
íugla, sem náðst hafa í
Bretlandi, hafa fengizt ein-
stöku íslenzkar rauðhöfða-
endur í Frakklandi og á
Spáni í október, og í des-
ember hefir þeirra orðið
vart á Hollandi og á Ítalíu.
Öðrum leiðangri stefna
rauðhöfðaendur frá íslandi
til austurstrandar Ame-
ríku, þar hafa þær fund-
ist í október, nóvember
og desember. Að sumar-
lagi hafa aðeins fundist
fáeinar merktar rauðhöfða-
endur á íslandi að liðnu
ári, eða lengri tíma frá
merkingunni, en á hinn
bóginn hafa fjórar verið
teknar í maí í Rússlandi
og Síberíu, einu til þremur árum eftir merkingu, og sömuleiðis
hefir einn fuid fengizt í Norður-Noregi í mai, þremur árum eftir
merkingu. Allt eru þetta sjálfsagt fuglar, sem slæðst hafa í förina
með þeim mikla fjölda af öndum, sem leggur leið sína alla leið
sunnan af Spáni yfir Holland, Danmörku Svíþjóð og Noreg alla
leið norður í Norður-Finnland og Norður-Rússland, og verpa þar
ef til vill. Önd sem fannst í Mið-Rússlandi í júlí, hefir ugglaust
komið þangað á sama hátt, með því að fylgja fuglum, sem tekið
hafa austlægari stefnu en hinar. Áberandi er það, hversu mikill
fjöldi af rauðhöfðaönd, sem merkt er á íslandi, verpir annars
staðar seinna.