Náttúrufræðingurinn - 1955, Blaðsíða 18
12
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
sézt reglulega. 1 desember 1953 til janúar 1954 héldu sig fáein pör á
Bakkatjörn. Hinn 27. des. 1954 sáust 23 á flugi yfir Bakkatjörn.
14. Skeiðönd (Spatula clypeata). Dagana 6,-—7. apríl 1954 sást
1 steggur á Bakkatjörn og í grennd.
15. Hávella (Clangula hyemalis). Algengur vetrargestur, sést
frá miðjum október fram í miðjan apríl. Mest er af henni í janúar
og febrúar, þegar kaldast er.
16. Straumönd (Histrionicus histrionicus). Sjaldgæf. Sést helzt
frá okt.—marz, aðallega á Seltjörn og við Gróttu, oftast stakir fuglar.
Frá miðjum febrúar til 8. maí 1953 hélt 1 steggur sig með stokkönd-
um í Suðurnesi og á Seltjörn og Bakkatjörn. Sást hann oftast með
stokkandarpari og var í sífelldum eltingarleikjum við [>að (í maí).
Vírtist hafa fullan hug á að ná í stokkandarkolluna.
17. Æðarfugl (Somateria mollissima). Algengur allan ársins
hring. Árlega verpa um 20 pör í litlum hóhna í Búðatjörn og svæð-
inu þar í kring, en einstaka hreiður er auk þess á gröndunum. Virð-
ist varpið heldur vera að aukast. Þau hreiður, sem ekki eru í hólm-
anum, sem er grasi vaxinn, eru oft í þangi rétt fyrir ofan sjávarmál,
en oft eru þau einnig í móum og á malar- og sandgröndum. Varp-