Náttúrufræðingurinn - 1955, Síða 44
36
NÁTTÍJRUFRÆÐINGURINN
Hinn glöggskyggni grasasafnari, Helgi Jónasson á Gvendarstöðum,
hefur sent Náttúrufræðingnum ýtarlegan lista yfir plöntur, sem hann
hefur safnað á Austurlandi. Markverðustu nýjunga er getið í lista
þeim, sem hér fer á eftir, og hafa plönturnar sömu númer og höf-
undur gefur þeim í lista sínum, en afrit af honum er í vörzlu Nátt-
úrugripasafnsins. H. E.
Að austan
eftir Ilelga Jónasson.
Sumarið 1952 ferðaðist ég um Borgarfjörð eystra, Njarðvík og
Húsavík. Og sumarið 1953 var ég nokkra daga í Loðmnndarfirði.
Á þessum ferðum athugaði ég gróður og safnaði nokkru af plöntum.
Verður hér á eftir gerð grein fyrir fundarstöðum og útbreiðslu nokk-
urra liinna sjaldgæfari plöntutegunda, er ég fann á þessum slóðum.
Þar við bætast fundarstaðir nokkurra tegunda frá öðrum stöðum á
NA. og Austurlandi, sem ég hef fundið á ferðum mínum þar, en
ekki skýrt fyrr frá þeim opinberlega.
1. Botrychium lunaria (L.) Sw. var. faciculatum C. Chr. Tungljurt. Gróblöðin
þríklofin. Á nokkrum stöðum hjá Hofi og Teigi í Vopnafirði.
2. B. lanceolatum (Gmel) Ángstr, Lensutungljurt. Geitavik í Borgarfirði, litið.
Norðdalur i Loðmundarfirði, mjög lítið. Gigbotninn á Rauðanúpi á Melrakka-
sléttu, fá eintök, smávaxin.
3. Dryopteris filix mas (L.) Sw. Stóriburkni. Á tveim stöðum á Ulfsstaðahálsi,
Loðmundarfiiði.
11. Lycopodium annotinum L. Lyngjafni. Partafjall i Borgarfirði, til og frá i
skógarkjarri. Á nokkrum stöðum hjá Hvannstóði, í lyng- og harðvellisbrekkum.
Ekki fundinn fyrr á Austurlandi.
14. Milium effusum L. Skrautpuntur. Hvannstóð i Borgarfirði. Húsavik. Úlfs-
staðir í Loðinundarfirði. 1 kjarri og gilskorningum.
18. Carex Macloviana, D. Urv. Kollstör. Fundin á einum stað í Loðmundar-
firði, á grófarbakka í túnjaðri á Seljamýri, litið útbreidd þarna. Hefur fund-
izt einu sinni áður á Austurlandi.
20. C. canescens L X Lachenalii Sch.kuhr. Bastarður á milli blátoppastarar og
rjúpustarar. 1 fjallinu ofan við Snotrunes í Borgarfirði. Einn mjög þéttvaxinn
toppur. Hef áður fundið þennan bastarð á Hvanntóarhrygg á Digranesi.
23. C. magellanica Lam. Keldustör. Njarðvík. Stakkahlíð í Loðmundarfirði.
25. C. Goodenoughii Gay, var. acrogyna Ostf. Mýrastör. Þetta einkennilega af-
brigði af mýrastör hef ég fundið áður á Leirhöfn á Sléttu og Tunguhálsi í
Skagafirði. En eintök, sem ég fann í viðirunnum hjá Klyppsstað í Loðmundar-
firði, eru nokkuð frábrugðin þeim, sem áður hafa fundizt. Ingimar Óskarsson,
grasafræðingur, hefur athugað þesa stör fyrir mig. Hann bætti nýju forma-