Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1955, Page 55

Náttúrufræðingurinn - 1955, Page 55
SITT AF I-IVERJU 47 karbónat en sjórinn, en það stendur í sambandi við það, að við önd- um með lungum. Hins vegar er magníum miklu meira í sjónum, og hafa sumir haldið því fram, að frumsjórinn hafi verið snauðari af magníum en nútímasjórinn. Annars er efnainnihaldið mjög aþekkt, ef sjórinn væri þynntur með þremur rúmtalseiningum af hreinu vatni. Enda má dæla talsverðu af slíkri upplausn inn í æðar manns- ins án nokkurs skaða. Blóðplasma sjávardýra er talsvert líkara sjónum, en þó er það skyld- ara mannsblóði en sjó. Hermann Einarsson. Hiti pólhafanna á fyrri jarðöldum Flest er nú farið að mæla, mætti segja, þegar vísindamenn mæla botnhitann í Kyrrahafi eins og hann var fyrir 30 milljón árum, en þó hljómar hitt ótrúlegar, að með sömu mælingunni sé ákveðinn yfir- borðshiti pólhafanna í þessari gráu forneskju, og þó virðist erfitt að véfengja, að hér sé rétt að farið. Að samband sé milli botnhita í Kyrrahafi og öðrum meginhöfum annars vegar og yfirborðshita pólhafanna hins vegar hefur haffræði vorra tíma leitt veigamikil rök að. Hita í liinum heitari meginhöfum er þannig háttað, að þótt yfirborðshitinn fari mjög eftir breiddarstigi eða áhrifum sólar, þá kólnar brátt á nokkru dýpi og megin sjávar- magnið er alls staðar kalt, eða niðri undir frostmarki vatns. Yið fyrstu athugun kemur þetta nokkuð á óvart. Jörðin er heit hið innra og hiti leiðist stöðugt út. Sjórinn tekur þannig við verulegum hita að neðan og eðlilegt jafnvægisástand sjávarhitans væri það, að örlítið heitara væri við botn en yfirborð, og lóðrétt hringrás héldi við slíkri hitadreifingu. En þannig er þetta ekki, og haffræðin hefur með mjög viðtækum rannsóknum gefið skýringuna. Til pólanna er kaldur sjór og þar sem hann er nægilega saltur, er hann þyngri í sér en heiti sjórinn um miðja jörð. Pólsjórinn rennur þess vegna i sífellu niður á botn heimshafanna og viðheldur þar lágu hitastigi. Djúpsær og sér í lagi botnsær heimshafanna er kominn frá og endurnýjast stöðugt frá pólsvæðunum og hann hefur mjög svipaðan hita og þar er ríkjandi í sjónum, þ. e. um frostmark vatns. Segjum nú, að á fyrri jarðöldum hefði yfirborðshiti köldustu hafa verið mun

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.