Náttúrufræðingurinn - 1955, Qupperneq 64
56
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
Prófessor Trausti Einarsson hefur nýlega birt viðamikla ritgerð um þyngdar-
mælingar ó Islandi. Er ritgerðin ó enskri tungu og nefnist „A Survey of Gravity
in Iceland11 og birtist í ritum Vísindafélags Islendinga. Athuganir þessar eru býsna
fróðlegar og skipta miklu móli í sambandi við myndunarsögu landsins.
Það er óvallt gleðiefni, þegar nýútskrifaðir nóttúrufræðingar flytjast til landsins.
Tveir sérfræðingar hafa nú tekið við störfum við Fiskideild Atvinnudeildar Hóskól-
ans, Mag. Aðalstcinn Sigurðsson lauk meistaraprófi við Hafnarháskóla ó síðastliðnu
óri, og fjallaði ritgerð hans um íslenzku flyðruna. Hann starfar nú einkum að
rannsóknum á flatfiskum, með sérstöku tilliti til Faxaflóans, en hefur þar að auki
á prjónunum athuganir ó botndýralifi. Mag. Ingvar Hallgiíinsson lauk meistara-
prófi við Oslóarháskóla siðastliðið haust, en sérgrein hans er sviffræði, og fjallaði
meistararitgerðin um svifdýr í Faxaflóa. Hann hefur nú hafið rannsóknir ó dýra-
svifi við strendur landsins, og mun einkum athuga rauðótutegundir hér við land,
þróunarferil þeirra, lífshætti og magn.
Dr. Sigurður Þórurinsson og Eysteinn Tryggvason, veðurfræðingur, tóku ó
s.l. hausti þótt í alþjóðamóti jarðeðlisfræðinga, sem háð var í Rómaborg. Um för
sina hélt Sigurður skemmtilega fyrirlestra i Náttúrufræðifélaginu og síðar í útvarpi.
Vísindaeríndi flutti hann á þinginu, og nefndist það „On the Tepliracronology of
Iceland and the Classification of Olastic Ejectamenta".
Sérfræðingar Fiskideildar tóku þótt í þingi Alþjóðahafrannsóknaróðsins, en það
var hóð í Paris ó siðastliðnu hausti, og fluttu þar skýrslur eða erindi um rannsókn-
ir sinar. Erindin höfðu þessi heiti:
Dr. Arni Friðriksson: The North-coast herring of Iceland in 1954.
Dr. Hcrmunn Einursson: General trends in the distribution of fish fry in Ice-
landic waters.
----- On the spawning of the Icelandic herring.
----- Remarks on the development of maturity in the Ice-
landic. herring.
Mag. Jón Jónsson: Marking of Cod in Icelandic waters during recent years.
Mag. Unnsteinn Slcfánsson: Distribution of herring in connection with hydro-
graphical conditions in the waters round Iceland
in 1954.
Ég vil að lokum fara þess vinsamlegast á leit við íslenzka nóttúrufræðinga, að
þeir sendi mér upplýsingar um erindaflutning og ritstörf á islenzku og erlendum
mólum, Jiátttöku Jieirra í erlendum mótum og leiðangia, sem þeir efna til eða
taka þátt i.
Með hækkandi sólu fer annatími i hönd, og ég óska öllum íslenzkum nóttúru-
skoðurum gleðilegs sumars.
Hermann Einarsson.