Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1995, Síða 10

Náttúrufræðingurinn - 1995, Síða 10
er e.t.v. engin furða, þar eð skin af blárri og blágrænni bylgjulengd berst lengst allra ljósbylgna í vatni. Þá vill einnig svo til að augu flestrá fiska eru næmust fyrir bláu og blágrænu ljósskini. Að lífljóminn sé kaldur þýðir að engin varmaorka myndast við myndun ljóssins, en hjá öllum öðrum ljósgjöfum myndast varmi samhliða Ijósi. Lífljóminn er enda oft kallaður „kaldaskin“ öðru nafni. Lífljómunin byggist á efnahvarfi þar sem til sögunnar koma Ijósefni (samband nokkurra eggjahvítuefna undir samheitinu lúsíferín), efnahvarfshvati (ensímið lúsíferasi), vetnisjón og súrefni (Nicol 1966). Það eru bakteríurnar sem leggja til ljósefnið og hvatann en líklega útvegar fískurinn súrefnið. Efnahvarfið gengur líklega fyrir sig á eftirfarandi hátt: 2(lúsíferín-H2)+ ö2 J^!L> 2(lúsíferín) + 2H O + ljóseind Hjá þeim örfáu lifandi lúsíferum sem hafa verið athugaðir og kveikt höfðu á veiðistönginni skein ljós stöðugt úr ljós- færunum. Hjá náskyldri fisktegund blikk- uðu ljósin hins vegar og einnig sást til þegar fiskurinn sprautaði ljósskýi út um ljósopið á perunni (Bertelsen og Krefft 1988). Ýmsir sjávarhryggleysingjar, eink- um smokkfiskar, sprauta gjarnan ljósskýi af þessu tagi út í sjóinn og er jafnvel talið að það rugli óvini í ríminu. Vel má vera að lúsíferinn hafi álíka stjóm á ljósabúnaði sínum. ■ ANNAR BÚNAÐUR: AÐLÖGUN OG ORKUSPARNAÐUR Veiðistöngin er eitt af mörgum dæmum um aðlögun kjaftagelgna að djúpsjávarlífi og um leið er hún ágætt dæmi um hagkvæmni í lausnum náttúmvalsins. Hagkvæmnin felst m.a. í orkusparnaði, svo sem þegar fískamir lokka til sín bráðina í stað þess að elta hana uppi, sem væri mjög erfitt og „kostnaðarsamt“ við kringumstæðurnar í djúphafmu. Flest bendir til að Iúsíferinn lokki til sín bráðina með því að sveigja veiðistöngina fram fyrir hausinn, þannig að þræðirnir dingli rétt fyrir írarnan lokaðan kjafitinn. I þessari stellingu bíður lúsíferinn líklega átekta þar til bráðin er nógu nærri en þá glennir hann skoltana skyndilega upp og bráðin sogast inn í ginið. Aðrar orkuspamaðarleiðir felast m.a. í sérhæfingu tannbúnaðar og meltingarfæra. Til dæmis ríður mikið á að lúsíferinn haldi bráð sinni örugglega þegar hann hefur loksins klófest hana - það gæti reynst dýrkeypt að missa bitann þar sem fæða er torfundin og óvíst hvenær aftur hittist á feng. Til að vama því að bráðin sleppi eru kjálkar lúsífersins alsettir löng- um og skörpum tönnum sem hallar inn á við. Með vaxandi aldri fisksins bætast við nýjar og sífellt lengri tennur á skoltana innanverða. Elstu og minnstu tennumar yst á skoltunum eyðast og falla af jafn- óðum og þær nýju bætast við. I fullvaxinni lúsíferahrygnu hafa verið taldar á fímmta hundrað tennur! Meltingarfæri kjaftagelgnanna eru frá- brugðin meltingarfærum margra annarra beinfíska að því leyti að þau eru teygjan- legri og hlutfallslega lengri. Teygjanleiki í magaveggjum kemur sér vel þar eð hann gerir kjaftagelgjum kleift að gleypa mjög stóra bita í einu, sem er orkufræðilega hagkvæmt í fæðusnauðu umhverfínu. Löng görn hefur í för með sér að fæðan dvelur lengur í meltingarkerfínu og þannig gefst meiri tími til orkuupptöku. í lúsífer Náttúmfræðistofunnar mældist görnin 153 cm á lengd, þ.e. tæplega ljómm sinnum lengri en fískurinn sjálfur, en nefna má að garnarlengd þorska er að jafnaði svipuð og þorskamir eru langir. Og hver skyldi hin ginnkeypta bráð vera sem er svo ólánsöm að láta blekkjast af ljósadýrð lúsífersins? Því miður fer ekki mörgum sögum af fæðu lúsífers eða ann- arra kjaftagelgna. Magar þeirra hafa oftast reynst tómir við skoðun. Sú var og raunin með lúsíferinn sem nýlega barst Náttúm- fræðistofunni. Þetta bendir enn frekar til að fæða sé ekki á hverju strái á heima- 172

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.