Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1995, Síða 32

Náttúrufræðingurinn - 1995, Síða 32
■ FIMMTÍU MILLjÓN ÁRA GAMALL FISKXJRINN Um áramótin 1938 til 1939 var prófessor Smith í sumar- og áramótaleyfi þar sem heitir Knysna. Þangað barst honum þriðja janúar nokkur stafli af bréfum, mest- megnis jólakveðjur en einnig bréf vegna prófdómarastarfa hans og nokkur er vörð- uðu físka. Þar á meðal var bréf frá Náttúru- gripasafninu í East London, borg austar- lega á suðurströnd Suður-Afríku. í því lýsti safnvörðurinn, ungfrú M. Courtenay- Latimer, fiski sem komið hafði í vörpu togara og hún fengið í hendur 22. des- ember. Af lýsingu hennar og teikningu (1. mynd) sýndist Smith að um væri að ræða físk af stofni sem til þessa hafði verið talinn útdauður á krítartimabili, fyrir 50 milljón árum (síðari tíma mælingar benda til að minnsta kosti 65 milljón ára). Holduggar, Sarcopterygii, eru undir- flokkur beinfíska sem einkennast meðal annars af því að pöruðu uggamir, eymggar og kviðuggar, era hreistraðir limir með geisla á endunum. Talið er að landhrygg- dýr, ferfætlingar, séu komin af fomum holduggum. Af holduggum þekkjast þrír ættbálkar: Sex tegundir lungnafiska (ættbálkurinn Dipnoi) lifa nú í ferskvatni á suðurhveli jarðar. Annar ættbálkur, Rhipidistia, er með öllu aldauða. Það sama töldu menn að ætti við hinn þriðja, Actinistia eða Coel- acanthiformes, skúfuggana. Algengt er að ættbálkar holdugga séu aðeins taldir tveir, lungnafiskar, Dipnoi, og skúfuggar, Cross- opterygii, sem er þá skipt i tvo undirætt- bálka, Rhipidistida og Actinistida. Smith sýndist einmitt að fiskurinn sem ungfrú Latimer lýsti hlyti að teljast til þessa þriðja ættbálks holdugga. Samt þótti honum þetta með ólíkindum. Hann sendi snarlega skeyti og bréf til East London þar sem hann hvatti ungfrú Latimer til að varðveita innyfli fisksins. Þetta reyndist því miður ekki hægt þar sem fiskurinn hafði verið slægður áður en hann var settur upp til sýnis á safninu og innvolsinu fleygt. Smith var um þetta leyti í miklum önnum, auk þess sem hann trúði tæpast að um skúfugga gæti verið að ræða. Eftir nokkur bréfaskipti, sem meðal annars urðu til þess að safnvörðurinn sendi prófess- ornum hreistur af fiskinum, tók hann sig samt upp 8. febrúar en tafðist vegna flóða á leiðinni, sem var um 560 km, og komst ekki til East London fyrr en 16. febrúar. 1. mynd. M. Courtenay-Latimer ásamt teikningum hennar og athugasemdum i bréfi til Smiths (Smith 1956). 194

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.