Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1995, Blaðsíða 33

Náttúrufræðingurinn - 1995, Blaðsíða 33
2. mynd. Bláfiskur, Latimeria chalumnae, er stálblár með Ijósum skellum. Flestir uggarnir eru á hreistruðum stilkum og sporðugginn er þrískiptur. Frumeintakið á safninu í East London er 160 cm (eftir Migdalski o.fl. 1976). ■ bláfiskurinn Þangað kominn fór hann að sjálfsögðu sem leið lá á safnið og skoðaði fískinn. Hann sannfærðist óðara um að þetta væri skúf- uggi og gaf honum fræðiheitið Latimeria chalumnae. Ættkvíslamafnið var til heið- urs safnverðinum sem hafði haldið dýrinu til haga og viðurnafnið höfðaði til þess að fiskurinn hafði veiðst við mynni Chalumnafljóts. Þar sem fiskurinn er skærblár að lit hefur tegundin fengið nafnið bláfiskur á íslensku og samsvarandi nafn á ýmsum öðrum málum. Fiskurinn var svo færður í lögreglufylgd á heimili Smiths í Grahamstown, þar sem hans var gætt dag og nótt. Skýrsla Smiths um skúfuggann birtist í Nature í Lundúnum og vakti að vonum mikla athygli fræðimanna. Sumir drógu í efa að um svo merkan fúnd væri að ræða. Enskur vísindamaður, sem skoðaði fiskinn heima hjá Smith, hvatti hann til að leita álits annarra og senda skepnuna helst á Breska safnið þar sem sérfræðingar gætu skoðað hana. Þessu svaraði Smith af sama skorti á lítillæti og Sherlock Holmes, að hann drægi i efa að aðrir en hann sjálfur hefðu meira vit á þessu. Annar fræði- maður, landi Smiths, hafði áhyggjur af því að hann væri að hætta mannorði sínu sem vísindamanns með þessu gaspri um að hafa fundið núlifandi skúfugga. Fleiri en vísindamenn urðu til að hafa samband við Smith. Kona skrifaði honum og kvaðst hafa frétt að hann hefði áhuga á því sem gamalt væri; sjálf ætti hún fiðlu sem verið hefði í eigu ijölskyldunnar í meira en öld. Væri hann til í að meta fiðluna ef hún sendi honum hana? Hann frétti af mörgum furðuhlutum og forn- gripum öðrum, auk þess sem honum bauðst að taka þátt í leit að fjársjóði í Dur- ban eftir gömlu sjóræningjakorti. Bók- stafstrúarmenn vöktu athygli Smiths á því að hann sniðgengi ritninguna með stað- hæfingum um milljónir ára og að þróunar- kenningin væri runnin undan riíjum myrkrahöfðingjans til þess eins að leiða sálimar á glötunarveg. Smith kepptist nú við að kryíja og rann- saka fiskinn enda gerðist safnstjómin í East London brátt óþolinmóð og heimtaði sinn fisk heim þar sem fólk biði eftir að skoða hann. Var hann svo fluttur á safnið í byrjun maímánaðar 1939, sem fyrr í vörslu lögreglu. Fjöldi manns kom til að skoða dýrið og tilboð bámst í það frá erlendum náttúrugripasöfnum. Ungfrú Latimer harð- neitaði að láta fiskinn af hendi og stjóm safnsins féllst á að sæmdin af því að hafa 195
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.