Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1995, Síða 36

Náttúrufræðingurinn - 1995, Síða 36
yfirvöldum þar auglýsinguna. Svo var að skilja sem þeim hefði fundist það svo frá- leitt að svona fískar lifðu þama að ekki hefði þótt taka þvi að dreifa auglýs- ingunni. Fyrir orð Hunts voru samt sendir innfæddir sendiboðar með hana um allar eyjamar. Þeir áttu að koma henni sem víðast upp og greina ólæsum frá boðskap hennar. Snemma að morgni aðfangadags jóla 1952 lagðist rannsóknaskip Smith-hjóna að bryggju í Durban, borg við austurströnd Suður-Afríku, nálægt 30° s.br. Síðar um morguninn færði einn skipverja prófessor Smith símskeyti. Það var frá Hunt og greindi frá því að hann væri með fimm feta bláfísk sem veiðst hefði 20. desember. Skeytið var sent frá Dzaoudzi, sem enginn kannaðist í fyrstu við en reyndist vera á einni hinni syðstu af Kómoreyjum, smáey sem heitir Pamanzi. ■ ÖMURLEG JÓL Smith sendi Hunt skeyti um hæl og hvatti hann til að reyna að koma fiskinum í kæli eða dæla í hann sem mestu formalíni að öðrum kosti. Síðdegis sama dag barst svar- skeyti frá Hunt þar sem hann bað Smith að sækja fískinn í flugvél. Þessi jól lá Smith ýmist andvaka eða hrökk upp við vondan draum um skúfugga sem úldnaði undir hitabeltssól um há- sumar. Hann sá að hann yrði að leita til yfirvalda. Sjálfur hafði hann ckki ráð á að taka flugvél á leigu auk þess sem vart væri völ á einkaflugvél um jólin. Hann reyndi að tala við einhvem af ráðherrum landsins en þeir reyndust ýmist i jólaleyfi eða erlendis. Loks tókst honum að ná tali af innanríkisráðherranum sem var fjarri stjórnarráðinu og kvaðst fátt geta gert með svona litlum fyrirvara, og það um jólin. Þá hringdi Smith í fulltrúa hersins og fór fram á að fá flugbát, sem lá í höfninni í Durban, til að sækja fiskinn. Herforinginn svaraði því til að hann gæti eins vel beðið um flugfar til tunglsins. ■ „SA SEM SAMDI ÞESSA BÓK..." Nú var aðeins í eitt hús að venda, að leita til sjálfs forsætisráðherrans, dr. Malans. Smith taldi það örþrifaráð. Hann hafði áður snúið sér til fyrirrennara Malans, Smuts, þegar hann þurfti á herflugvél að halda vegna áríðandi vísindaleiðangurs en Smuts hafði tekið honum illa. Auk þess var ráðherrann í jólaleyfi á heimili sínu í Strand, skammt austan við Höfðaborg, og tæki trúlega óstinnt upp ef hann væri trafl- aður. Við það bættist að Malan var Búi og ekki sérlega vinveittur enskumælandi löndum sínum, og ofan á annað kalvínisti og þar með trúlega í nöp við raunvísindi og sér í lagi þróunarkenninguna. Annan dag jóla barst skeyti frá Hunt þar sem hann sagði yfirvöld á Kómoreyjum ásælast fiskinn en ef Smith kæmi sjálfúr fengi hann að fara með hann. Smith leitaði til þingmanns sem Vemon Shearer hét og hann hafði milligöngu um að koma boðum til forsætisráðherra um að prófessor Smith þyrfti að ná tali af honum um mál er varðaði þjóðarheill. Smith hafði sent Malan eintak af fiska- bókinni og svo vel vildi til að frú Malan hafði tekið hana með í jólaleyfið. Þegar Shearer náði sambandi við frúna á ellefta tímanum að kvöldi annars jóladags vildi hún hlífa manni sínum við ónæði og fresta málinu til morguns en hann spurði um hvað það snerist: „Þessi Smith er kunnur maður. Réttu mér fiskabókina.“ Frúin skýrði manni sínum frá erindinu. Hann fletti upp á bláfiski í bókinni og sagði svo: „Sá sem samdi þessa bók væri ekki að leita til mín á þessurn tíma nema mikið lægi við. Eg verð að tala við hann.“ Smith greindi Malan svo frá erindi sínu á búamál i (afrikaans) fremur en á ensku ef það mætti verða til að blíðka ráðherrann. Malan hlýddi á mál hans og mælti að því loknu: „Þér talið ágæta afrikaans. Ég get ekki orðið yður að liði í kvöld en í fyrra- málið skal ég ræða við hermálaráðherra minn og fela honum að útvega yður flug- vél til fararinnar.“ 198

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.