Náttúrufræðingurinn - 1995, Qupperneq 40
6. mynd. Lifandi bláfiskur myndaður úr köfunarhylki. Fiskurinn stendur á höfði á
botninum og er þá trúlega að greina rafsvið frá bráð eða öðrum fiskum sömu tegundar.
Ljósm. J. Schaurer, © H. Fricke.
hross á brokki. Annað veifíð mátti sjá
bláfisk standandi á höfði á botninum
(7. mynd). Þjóðverjana grunaði að þarna
væri fískurinn að greina rafsvið frá öðrum
dýrum. Tilraunir, þar sem beitt var veiku
rafsviði, renndu stoðum undir þennan
grun.
Þegar J.L.B. Smith nálgaðist sjötugt
vann hann enn langan vinnudag og gekk
50 kílómetra á viku. En úr því seig á
ógæfuhlið. Sjónin dofnaði og minnið
brast. Smith þoldi ekki til þess að hugsa að
lenda karlægur út úr heiminum. Hann
svipti sig lífí að morgni 8. janúar 1968,
ásjötugasta og fyrsta aldursári.
ÞAKKIR
Aðalræðismaður Suður-Afríku á íslandi, Jón
Reynir Magnússon, útvegaði mér ljósrit af
æviágripi Smiths, sem Margaret Smith skráði
að manni sínum látnum (Smith 1969). Kann ég
honum góðar þakkir fyrir.
Heimildir
Fricke, Hans 1988. Coelacanths. The fish that
time forgot. National Geographic 173, 6,
824-838.
Migdalski, Edward C. & George S. Fichter
1976. The Fresh and Salt Water Fishes of
the World. Knopf, New York?
Pough, F. Harvey, John B. Heiser & William
N. McFarland 1989. Vertebrate Life, 3. útg.,
Macmillan Publishing Company, New York.
Smith, J.L.B. 1956. Old Fourlegs. The Story of
the Coelacanth. Longmans Green & Co.,
London?
Smith, Margaret M. 1969. J.L.B. Smith, his
Life, Work, Bibliography and List of New
Species. Department of Ichthyology, Rhodes
University, Grahamstown.
PÓSTFANG HÖFUNDAR
Örnólfúr Thorlacius
Menntaskólanum við Hamrahlíð
105 REYKJAVÍK
3 Hér rekur Smith söguna af bláfískinum.
Bókin er aðalheimild mín að þessari stuttu rit-
smíð. Hún var gefín út á ensku áEnglandi og í
Bandaríkjunum og auk þess þýdd á þýsku,
frönsku, rússnesku, búamál og slóvakisku, og
Blindrabókasafn Suður-Afríku gaf hana út á
segulbandi.
202