Náttúrufræðingurinn - 1995, Page 57
7. mynd. Vatnsfell við suðvesturströnd Reykjaness. Snið 4 á 8. mynd er í skarðinu
hægra megin við manninn. — Vatnsfell, tuff-cone remains at the SW-shore of Reykjanes.
Mynd/photo Magnús A. Sigurgeirsson.
snið í Vatnsfelli. Staður er
sýndur á 1. og 6. mynd. - Sim-
plified tephra section in
Vatnsfell. See fig. I and 6 for
location.
yngri gígurinn algerlega kaffært þann eldri. Aðgengileg
snið í Vatnsfelli og við Kerlingarbás gerðu kleift að
skoða innviði og innbyrðis afstöðu gíganna mjög
nákvæmlega. Fremur auðvelt reyndist að greina gígana
í sundur vegna ólíkrar byggingar þeirra.
Á 6. mynd er sýnd lega og útbreiðsla gígleifanna við
ströndina. Skal þar vakin sérstök athygli á 150 m breiðu
skarði sem fram kemur í eldri gígnum við Kerlingarbás.
Benda öll ummerki til að orsök þess sé sigdæld, mörkuð
af misgengjum, sem liggur til norðausturs frá strönd-
inni. Telja verður víst að sjór hafí átt greiðan aðgang um
dældina áður er gígurinn varð til og skarðið sé tilkomið
vegna sjávarrofs. Dældin hefur siðan fyllst af gjósku
yngri gígsins. Við vesturmörk sigdældarinnar gefur að
líta túfflögin R-l-R-3 (sbr. 1. töflu) sem eru ótvíræð
merki um neðansjávargos við Reykjanes. Við Kerling-
arbás kemur fram þverskurður í einn af gjallgígum
Eldri-Stampagígaraðarinnar (R-Gl) og má þar fá ágæta
mynd af innviðum slíkra gíga.
Könnun gícleifanna
Sökunr þess hversu gjóskugígamir eru mikið rofnir,
með aðeins hluta gígrimanna varðveitta, varð að beita
ýmsum aðferðum til að finna út upphaflega legu þeirra.
í þessu skyni voru gerðar ítarlegar mælingar á halla laga
219