Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1995, Page 61

Náttúrufræðingurinn - 1995, Page 61
hægt að rekja inn til landsins, jafnvel ekki í næsta nágrenni, þannig að telja verður víst að gjóskan hafí að mestu borist til hafs. Upphleðsla Karlsgi'gsins Bygging Karlsgígsins er mjög einsleit og því ekki hægt að merkja verulegar sveiflur í upphleðslu hans. Lagskiptingin einkenn- ist af misþykkum, reglulegum lögum. I gígnum er talsvert af öskubaunum (<1 cm í þvermál) og hörðum blöðróttum lögum. Er það talin vísbending um að gjóskan sé mettuð raka er hún sest til (Lorenz 1974). Bygging Karlsgígsins ber með sér að hann hafi hlaðist upp bæði í gusthlaupum og gjóskufalli og að þessir flutningsmátar gjóskunnar hafi verið í gangi samtímis að verulegu leyti. Gjóskulag frá Karlsgígnum (R-7) er hægt að rekja nokkuð inn til landsins en útbreiðslan er fremur lítil og takmarkast við Reykjanes. Lega gjósku- geirans og þykktardreifmg bendir til að mikill hluti, hugsanlega meginhluti, gjósk- unnar hafi borist á haf út (13. mynd). Dálítið hraun hefur náð að renna frá Karlsgígnum undir lok gossins. í sigdæld- inni við Kerlingarbás liggja tveir berg- gangar upp i gegnum gígrimann, í hraun- tungu sem þar situr ofaná (14. mynd). Nyrðri gangurinn tengist hrauninu beint en sá syðri liggur undir það og er að öllum líkindum aðfærsluæð gígvarpa skammt inn af ströndinni (1. mynd). Athugun á jöðrum hraunsins bendir til að það sé ekki runnið frá gígum Yngri-Stampagígaraðarinnar á landi heldur eigi upptök undan ströndu, í gígum sem nú eru horfnir, og hafí því runnið inn til landsins. Hefur hraunið kom- ið upp í rima Karlsgígsins austanverðum og runnið inn á núverandi strönd um lægð sem verið hefur í gígrimanum af völdum sigdældarinnar. Útbreiðsla þess ákvarðast greinilega af legu dældarinnar. Til saman- burðar má nefna að í Surtseyjargosinu 1963-1967 kom hraun nokkrum sinnum upp í gjóskukeilunni Surti, bæði í innan- og utanverðri gígskálinni og myndaði hraunspildur (Sigurður Þórarinsson 1968). Virðist sem kvika eigi greiða leið í gegnum gígrima gjóskugíga. frá Karlsgignum. - The distribution of tephra from the Karl-cone. 14. mynd. I fjörunni við Kerlingarbás má sjá berggang sem liggur upp í gegnum gjóskustafla (gígrima Karlsgígsins) og verið hefur aðfærsluœð Yngra-Stampa- hraunsins. — Feeder dike of the Younger- Stampar lava penetrating the Karl tephra deposit. Mynd/photo Magnús A. Sigur- geirsson. 223

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.