Fréttablaðið - 23.05.2009, Side 51

Fréttablaðið - 23.05.2009, Side 51
FERÐALÖG 9 evrur og er þá allt innifalið nema dísilolía, kostur og hafnargjöld annars staðar en í heimahöfn. Með flugstjóradellu sex ára Önundur hefur lengst af varið starfsævinni sem flugstjóri, síð- ustu sautján árin hjá Lufthansa áður en hann sneri sér að skútu- rekstrinum. Hann er fæddur og uppalinn í Hrísey til átta ára ald- urs og ákvað sex ára gamall að hann ætlaði sér að verða flugstjóri þegar hann yrði stór.„Sú mynd er mér enn ljóslifandi þegar Jóhann Helgason lenti á eins hreyfils sjúkraflugvél, Cesnu 180, í fjörunni í Hrísey til að ná í sjúkling þegar ég var aðeins sex ára. Þetta þótti afskaplega tilkomumikið. Allir eyjaskeggjar þustu niður í fjöru og þarna í fjörunni ákvað ég að gerast flugstjóri. Þetta var svo heillandi heimur fyrir ungan eyjapeyja. Til þess að eiga fyrir flugskírteininu var ég á sjó í nokkur ár og stund- aði allan veiðiskap nema skakið. Og það var þá sem ég uppgötvaði að ódýrast væri líklegast að kaupa sér flugvél og leigja sér kennara sem ég svo gerði.“ Eftir að atvinnuflugmaðurinn og kennaraskírteinið var í höfn fór Önni vestur á Ísafjörð og rak flugskóla sumurin 1968 og 1969. Næstu fimm árin starfaði hann hjá Flugstöðinni í Reykjavík sem var með bæði flugskóla og leiguflug á sínum snærum. „Sá tími var mjög skemmtilegur því þar var ég stór fiskur í litlum polli sem yfirkenn- ari og yfirflugstjóri.“ Þá lá leið Önundar til Air Viking, sem var í eigu Guðna í Sunnu. Þar byrjaði hann að fljúga stórum vélum, en eftir hálft annað ár fór Air Vik- ing á hausinn, en starfsfólkið tók sig saman og stofnaði Arnarflug 1977 sem fór svo í þrot einum tólf árum síðar. „Ég var lengst af yfir- hershöfðingi í útlendingahersveit- inni, sem kölluð var, búsettur í Bretlandi, og sá um leiguverkefni fyrir hönd Arnarflugs. Ég hætti hjá félaginu ári áður en það sigldi í strand, stoppaði síðan í hálft ár hjá British Airways og fór svo til Lufthansa.“ Siglingaskóli og siglingakeppnir Auk þess að leigja skúturnar til siglinga, ætlar Önni að halda áfram að bjóða áhugasömum siglinga- köppum upp á þátttöku í Regatta- siglingakeppnum. Keppnir þessar fara fram tvisvar á ári, í maí og í nóvember ár hvert og er þá gjarn- an mikið um dýrðir í skútubænum. Á vorin stendur hann svo fyrir tíu daga siglinganámskeiðum, sem eru sniðin að fólki með siglingaréttindi en skortir reynslu. „Ég er fyrst og fremst að kenna sjómennsku og byggi námsefnið á námsskrá frá Siglingamálastofnun og Royal Yachting Association. Nú þegar er ég búinn að útskrifa fimmtán skipstjóra. Menn fóru mjög ánægð- ir frá borði sem hvetur mig áfram til góðra verka. Ég mun því halda þessum nýja Siglingaskóla mínum á floti áfram og kem til með að bjóða upp á næstu tíu daga nám- skeið í apríl næstkomandi.“ Sundsprettur, raki og slökun Þegar komið er að leiðarlokum æfingadagsins, eru menn aðeins farnir að lýjast í sólinni. Stefn- an er tekin í land með smá við- komu og sundspretti við Göcek- eyju, sem skartar fallegri strönd, trébryggju og veitingastað, líkt og fjölmargir aðrir viðkomustað- ir við flóann. Íslensku víkingarn- ir skella sér í sundbuxurnar og út í sjóinn og synda af sér dagssvit- ann. Eftir að allir hafa sturtað sig um borð í ferskvatni, siglir Tobb- an svo áfram í átt að heimahöfn. Þegar búið er að binda með dyggri aðstoð bryggjuvarðarins, sem heit- ir „Skúli“ upp á íslensku, setjast menn niður með tyrkneskt raki og ræða um gang æfingarinnar, vind, hraða, fokkur, spotta, hnúta, stór segl og belgsegl. „Svona leikum við strákarnir okkur,“ segir Önni og er greinilega nokkuð brattur með sitt lið. Hann bætir þó við að skútusigl- ingar séu að sjálfsögðu ekki bara skemmtilegt strákasport heldur líka kvennasport og alhliða fjöl- skyldusport. „Eftir alla mína sigl- ingareynslu er það engin spurning í mínum huga að Tyrklandsstrend- ur tróna á toppnum sem siglinga- svæði auk þess sem heimamenn eru einstaklega hjálpfúsir, gest- risnir og vingjarnlegir,“ bætir hann við. Og þegar spurt er hvað sé svona skemmtilegt við skútu- siglingar, stendur ekki á svari hjá strákunum. „Þetta er bara þannig að um leið og maður er kominn út á sjó á seglskútu gleymist staður og stund. Maður hverfur inn í þögnina enda notast seglskútan við náttúru- öflin til að komast frá einum stað til annars þótt vissulega sé hægt að gangsetja vélina ef byrinn er enginn og mikið liggur við.“ STRÁKARNIR OKKUR“ Fetiye-flói Tyrkland er ævintýralega fallegt og litskrúðugt land. sumarferdir.is Tenerife Fanabe Costa Sur ALLT INNIFALIÐ* Verð frá: 99.999kr. á mann m.v. 2 fullorðna og 1 barn í viku. Brottför 1. júlí. * Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður með innlendum drykkjum. Snarl milli mála og kökur og kaffi . Krakkaklúbbur á daginn og skemmtidagskrá fyrir krakka á öllum aldri á kvöldin.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.