Fréttablaðið - 18.07.2009, Síða 11
LAUGARDAGUR 18. júlí 2009
SAMFÉLAGSMÁL „Það er lítil stemn-
ing fyrir skynseminni í íslensku
samfélagi um þessar mundir,“ segir
Borgar Þór Einarsson, ritstjóri Lög-
mannablaðsins í
ritstjóragrein
nýjasta heftisins.
Greinin ber heit-
ið „Engin stemn-
ing fyrir skyn-
seminni“.
Í grein-
inni áréttar
Borgar mikil-
vægi réttarrík-
isins, réttlátrar
málsmeðferðar og óvilhallra dóm-
stóla. Segir hann þá einstaklinga
fá hljómgrunn í samfélaginu sem
bera á borð fordæmingu í forrétt,
skyndilausnir og alhæfingar í aðal-
rétt og aftöku án dóms og laga í
desert.
„Þeir sem eyðileggja veðsettu
húsin sín eða hvetja fólk til lög-
brota eru ekki hetjur. Þeir sem
ekki virða grundvallarreglur rétt-
arríkisins um réttláta málsmeð-
ferð eru það ekki heldur,“ segir að
lokum í greininni.
Vill Borgar meina að hetjur
Íslands séu þeir sem taka upp
hanskann fyrir skynsemina og
andæfa stemningunni. - vsp
Harðorð ritstjórnargrein:
Ekki stemning
fyrir skynsemi
Reistu níðstöng
Þriggja metra hárri níðstöng hefur
verið komið fyrir við veginn á Strönd-
um skammt frá Kaldrananesi. Stöngin
er reist til höfuðs útrásarvíkingum og
á hana er búið að letra ýmis konar
níð. Samkvæmt bb.is var stöngin reist
af hjónum sem hafa lent í hremming-
um vegna efnahagsástandsins.
ÍSAFJÖRÐUR
EFNAHAGSMÁL Samtök Iðnaðarins
hafa hafið ítarlega greiningu
á áhrifum aðildar Íslands að
Evrópusambandinu. Þetta kemur
fram í fréttabréfi samtaka Iðnað-
arins, Íslenskur iðnaður.
Bjarni Már Gylfason hag-
fræðingur stýrir vinnu starfs-
hóps samtakanna. Hann segir að
vinna starfshópsins muni byggj-
ast á því að bera saman mögulega
þróun iðnaðar á Íslandi miðað við
að standa utan eða innan Evrópu-
sambandsins. Jafnframt segir að
greiningin verði ítarlegri en áður
hefur verið lagst í. Samtök Iðnað-
arins hafa ætíð stutt aðild að Evr-
ópusambandinu. -bþa
Samtök iðnaðarins:
Greina áhrif
aðildar
BORGAR ÞÓR
EINARSSON
Ágúst áfram rektor
Katrín Jakobsdóttir menntamálaráð-
herra hefur skipað Ágúst Sigurðsson í
embætti rektors Landbúnaðarháskóla
Íslands til næstu fimm ára. Ágúst
hefur gegnt starfinu undanfarin fimm
ár og var annar tveggja sem sóttu um
embættið.
MENNTAMÁL
41
0
4
00
0
|
la
nd
sb
an
ki
nn
.is
AUKAKRÓNUR
2 gallabuxur á ári
fyrir Aukakrónur
A-kortin
Kreditkort sem safna Aukakrónum fyrir þig
Þú getur keypt þér nýjar Diesel gallabuxur að vori og hausti hjá fjölmörgum verslunum NTC
fyrir Aukakrónurnar sem safnast þegar þú notar A-kortið þitt – eða eitthvað annað sem þig
langar í hjá samstarfsaðilum Aukakróna.
Sæktu um A-kort á www.aukakronur.is
* M.v. 150 þúsund kr. innlenda verslun á mánuði, þ.a. 1/3 hjá samstarfsaðilum.
Sjá nánar á www.aukakronur.is.
*
33 MILLJÓNIR
Í EINU HÖGGI
Lottópotturinn er fimmfaldur og stefnir beinustu leið í 33 milljónir.
Leyfðu þér smá Lottó!
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
3
0
0
8
1