Fréttablaðið - 18.07.2009, Síða 36
● inni&úti
fróðleikur í tölum
5.523
báru nafnið Jón sem fyrsta
eiginnafn 1. janúar 2008.
Þá báru 938 nafnið Jón sem
annað eiginnafn.
… ÞEIRRI SÉRSTÖKU UPP-
LIFUN sem hlýst af því að skoða
sýningu sem Rósa Sigrún Jónsdóttir
myndlistarkona opnar í Djúpuvík á
Ströndum í dag klukkan 14. Lista-
konan heimsótti staðinn sumarið
2008 og varð heilluð þegar hún kom
inn í lýsistank sem tilheyrir gamalli
síldarverksmiðju og fannst kjörið að
halda sýninguna inni í honum.
… AÐ MENN GERI SÉR FERÐ
upp í Árbæjarsafn á morgun þar sem
harmonikkuhátíð hefst klukkan 13.
Meðal þeirra sem spila á hátíðinni
eru Bragi Hlíðberg, Reynir Jónasson
og Karl Jónatansson. Auk þeirra mun
stórsveit frá Harmonikkufélaginu
Hljóm úr Reykjavík spila undir stjórn
Sigurðar Alfonssonar. Sérstakir gestir
að þessu sinni eru meðlimir Félags
harmonikkuunnenda á Suðurnesjum
og frá Noregi kemur sérstakur gestur
hátíðarinnar, Sigmund Dehli.
… HÖNNUNARMARKAÐI
sem Rósa Helgadóttir fatahönnuður
stendur fyrir að Grund, Bjarkarbraut
6 á Laugarvatni sem verður opinn á
morgun milli klukkan 14 og 18. Von
er á básúnuleikara, stærðfræðingi og
myndlistarmönnum.
… SUMARTÓNLEIKUM í
Norræna húsinu. Fyrstu tónleikarnir
hefjast í dag klukkan 14. Næstu tón-
leikar verða á mánudag, þá miðviku-
dag og loks á laugardag eftir viku.
Sjá dagskrá á www.nordice.is.
VIÐ MÆLUM MEÐ…
905
íbúar á Íslandi eiga
afmæli í dag.
100 sæti voru við hringborðið hjá Artúr konungi
samkvæmt Le Morte d’Arthur eftir Sir Thomas Malory frá 1485. 90.000 blaðsíður
af bókapappír eða 2.250 eintök af 40 blaðsíðna
Fréttablaði fást úr einum faðmi af höggnum viði.12 menn hafa komið til tunglsins og
tíu til viðbótar komist á braut um það.
Girnileg ný grillbók
eftir Thomas Möller,
höfund Eldaðu maður.
Njóttu augnabliksins, ilmsins,
bragðsins og takmarkalausrar ánægju við
grillið og ... GRILLAÐU EINS OG MAÐUR
18. JÚLÍ 2009 LAUGARDAGUR4