Samvinnan - 01.06.1949, Blaðsíða 3
„Vetrarsálskin" — málverk eftir Churchill á konunglegu, brezku listasýningunni i ár.
CHURCHILL - LISTAMAÐUR
Stntt álitsgerð eftir ERIC NEWTON
Hinn frægi brezki stjómmálamaður,
Winston S. Churchill er ágætur list-
málari. Nýlega flutti ameríska stór-
blaðið New York Times skemmti-
lega grein um listamanninn Churc-
hill ,eftir Eric Newton, listagagnrýn-
anda brezka blaðsins The Sunday
Times. Höfundurinn og hið ameríska
blað hafa góðfúslega leyft Samvinn-
unni að þýða greinina og flytja hana
hér. New York Times lánaði jafn-
framt Ijósmyndir af listamanninum
og nokkrum verkum hans.
í SÝNINGU konunglega brezka
± \ listasafnsins í ár gat að líta þrjú
málverk eftir Winston Churchill. —
Vitaskuld veitti almenningur þessum
myndum alveg sérstaka ath)gli. Sams
konar atlrygli beindist að Paderewski
þegar hann varð forseti Póllands. Þar
var ekki um það að ræða að mikill
píanósnillingur gerðist mikill stjórn-
málamaður. Og hvað við kemur
Churchill, þá er heldur ekki um það
að ræða að mikill stjórnmálamaður sé
jafnframt mikill listamaður. Ef mynd-
ir hans hefðu verið ákaflega frumstæð-
ar og barnalegar (en það eru þær ekki)
mundu þær líklega hafa vakið enn
meiri athygli. Það, sem um er að ræða,
er sú staðreynd, að Churchill skuli yf-
irleitt geta sett mynd á léreft. Hin
fræga setning dr. Johnsons, um kven-
prédikara, er raunar hnitmiðaðasta
lýsingin á fólki, sem fæst við eitthvað
utan síns viðurkennda verkahrings:
„Kona, sem prédikar, er eins og hund-
ur, sem gengur á afturfótunum. — Það
er naumast liægt að kalla það vel gert,
en undrunarefnið er, að það skuli yfir-
leitt vera gert.“
En myndir Churchills eru vel gerð-
ar, enda þótt það sé naumast þess
vegna, sem almenningur veitir þeim
svo mikla athygli. Ef Truman forseti
3