Samvinnan - 01.06.1949, Page 22
Við þetta má bæta því, að harðindi þessi
náðu yfir Skagafjörð og til Eyjafjarðar a. m.
k., einkum síðari hluta vetrarins.
Þá herma og heimildir það, að einhverjir
muni hafa fargað af fénaði sínum upp úr
miðjum vetri vegna heyleysishættu, en svo
hygg eg þó að ekki hafi verið austan Vatns-
skarðs.
Undir sumarmálin harðnaði enn veðráttan.
Var þá haglaust með öllu víða um sveitir, og
enginn vottur um bata. Á sumardaginn fyrsta
var norðanhríð mikil með nokkru frosti. Um
fyrstu sumarhelgina var mikil fannkoma.
Svo hefur sagt mér minnugur maður og
greinargóður, sem þá átti lieima utast í
Tungusveitinni og enn er á lííi, að á sunnu-
daginn þann hafi verið nokkurra stiga hiti
á mæli þar, en þá hafi kyngt niður svo mikl-
um snjó í logni, að fádæmum sætti. En gadd-
þylja var undir. Og svo frysti að nýju.
Þegar sýnilegt þótti hvað verða vildi, fóru
ýmsir bændur í Skagafirði að ugga um sinn
hag, og sáu heyþröng fyrir dyrum, ef gefa
þyrfti inni öllum fénaði langt fram á vor.
Inni í Skagafjarðardölum hafði veturinn
eigi orðið eins þungur fyrir fæti og úti í
sveitinni. Mun aldrei hafa tekið alveg fyrir
útbeit þar. Og er liér var komið, var gnægð
jarðar á innsta býlinu í Vesturdal, Þorljóts-
stöðum, heyskaparlítilli og afskekktri jörð.
Landrými er þar mikið, vetrarbeit góð, land-
gæðum og veðursæld við brugðið. Svipað
mun og hafa verið á innstu bæjum í Austur-
dal.
Nú tóku nokkrir bændur í Lýtingsstaða-
hreppi það ráð, að gera út sendimann á fund
bóndans á Þorljótsstöðum, Hjálmars Þorláks-
sonar, nú í Villingadal í Eyjafirði, og biðja
hann leyfis að þeir mættu reka nokkuð af
sauðfé sínu á haga þangað fram, til að létta
á fóðrunum heima fyrir. Hjálmar tók þeirri
málaleitan vel, kvað það sjálfsagt, ef vera
mætti að það yrði fénu til bjargar.
Þá hafði fyrir tveimur árum verið sett brú
á Vestari-Jökulsá hjá Goðdölum, en liún er
mikið og illt vatnsfall á þessari leið. Um þá
brúarbyggingu hafði staðið nokkur styrr, svo
að hitamál virðist hafa orðið í bili. Lagðist
hreppsnefnd Lýtingsstaðahrepps, eða megin-
hluti liennar a. m. k. — en hún var skipuð
mönnum fyrir utan ána — á móti bygging-
unni. Höfðu þeir jafnvel látið á sér skilja,
að brú þessi myndi verða Dalamönnum til
minnkunnar. Þó hafðist þetta mál fram.
Má lesa um þetta í grein, er séra Vilhjálm-
ur Briem reit fyrir nokkrum árum í tímaritið
Jörð, og hann nefnir Brúin á Vestari-Jökulsá,
en hann var þá prestur að Goðdölum.
Því var það, að öldungurinn Sveinn í
Bjarnastaðahlíð, spurði sendimann þeirra
sveitunga eitthvað á þá leið, livernig þeir
hugsuðu sér að koma fénu fram yfir ána,
því að væntanlega liefðu þeir ekki geð í sér
til að nota brúna. Munnlegt svar barst víst
ekki, en féð var rekið yfir á brúnni, enda
vart um aðra leið að ræða eins og á stóð.
Mun aldrei liafa verið minnzt á þetta brúar-
mál síðan.
Annars skal það tekið íram, að eg hef lieyrt,
að andstaða hreppsnefndarinnar i þessu máli
muni meir liafa byggzt á því, að lienni hafi
fundizt Dalamenn sniðganga sig eitthvað, er
þeir hófu það og undirbúning þess, og að
það hafi verið sótt af fullmiklu kappi, en
hinu, að hún hafi ekki unnt þeim að fá
brúna upp, né kunnað að meta þörf hennar.
Hreppurinn hafði vitanlega lítil fjárráð, en
þetta var önnur mesta og dýrasta brúin, sem
byggð hafði verið í Skagafirði til þessa, en
fremur fámenn sveit, sem naut liennar að
jafnaði.
En úr því að ég minnist á brúna, þykir
mér rétt að nota tækifærið til að leiðrétta
eitt lítil atriði í grein séra Vilhjálms, það,
er liann segir, að brú þessi muni hafa verið
uppi nær áratug. Hún varð ekki nema rúm-
lega 3 ára gömul, fauk í ofviðrinu mikla, 20.
september árið 1900. Var liún byggð að nýju
vorið eftir. Varð ég eigi annars var, en að
lireppsnefndin gerði þá fulla skyldu sína og
skjótt í því máli.
RIÐJUDAGINN fyrsta í sumri var hrein-
viðri, frost almikið og þykk fannbreiða
yfir öllu. Það kvöld kom fyrsti fjárreksturinn
að Þorljótsstöðum, og hinn stærsti. Áttu flest
í þeim liópi þeir nágrannarnir, séra Jón
Magnússon á Mælifelli, mikill búhöldur og
fjármargur, síðar bóndi að Bjarnarhöfn, og
Þorgrímur Bjarnason, bóndi að Starrastöðum,
góður búþegn, föngulegur maður og prúður,
dáinn á sjúkrahúsinu á Akureyri tveim árum
síðar, eftir langa og þunga legu þar („Þor-
grímur á spítalanum"). Komu þeir báðir síðar
fram eftir til að líta eftir fé sínu. Nokkrir
fleiri áttu og fé í þessum hópi, en færra.
Ófærð mikil var þá út í héraðinu, og voru
teymdir hestar á undan fram sveitina til að
troða slóð fyrir féð. Hafði séra Jón lengst af
farið þar fyrir með sinn hest. Þegar kom fram
fyrir Jökulsá, léttist færðin nokkuð. Næstu
daga komu svo enn nokkrir rekstrar. Ekki
man ég, hversu margt fé var alls rekið að
Þorljótsstöðum um vorið, en einhvers staðar
á öðru þúsundinu var það. Aðallega var það
geldfé og síðbærur. Einhverjir ráku og fé sitt
á Austurdalsjarðirnar, og í Silfrastaðafjall
margt, eftir því sem mig rninnir.
Menn voru settir til að gæta fjárins á Þor-
ljótsstöðum, fyrst tveir, en síðar fleiri. Sváfu
þeir heima þar um nætur, en gengu til fjalls
á hverjum degi. Var reynt að halda fénu
suður í svonefndri Runu, fyrir framan Ula-
gil, en það er æði langt innan við byggð,
austan árinnar, en Þorljótsstaðir eru þeim
megin í dalnum. Er þarna snjólétt að jafnaði
og vorgott. Þar er kvistlendi nóg og annað
kjarngresi.
Þetta var all-erilssamt starf, og erfitt, þá
Runa var gengin á enda, því að hún er löng
og torfarin.
Undir aðra sumarlielgina stilltust veður og
tók að hlýna. Þó var batinn eigi ör fyrst í
stað, en áframhaldandi. Var vorið hretviðra-
laust úr þessu, og munu fjárhöld liafa orðið
sæmileg.
Úr miðjum maí var komin upp nokkur
sauðjörð í Tungusveit. Þá var orðið snjólaust
í landi Þorljótsstaða upp fyrir miðjar hlíðar.
Þrátt fyrir angan jarðar þar og góðgresi,
virtist margt af hinu óhagvana fé verða gripið
miklu óyndi, þegar hlýnaði í veðrinu. Varð
nú að vaka yfir því nótt og dag, og dugði
naumast, þrátt fyrir aukinn mannafla. Var
því eigi um annað að ræða en að taka það
heim.
Allmargt af fénu hafði leitað vestur yfir
Hofsá, sem fellur eftir dalnum yfir á Lamba-
tungur, en þar er gott haglendi. Nú vildi svo
til, að þegar smala átti fénu til heimferðar,
var áin í miklum vexti, svo að enginn kostur
var að reka það í hana. Svo var einnig um
Hraunþúfuá, en liún kemur suðvestan af ör-
æfunum og sameinast hinni, innarlega í daln-
um. Var því aðeins um eitt að velja, að reka
féð inn á afrétt, þar sem komizt varð með
það á snjóbrúm frá vetrinum yfir Hraun-
þúfuá langt suðvestur í drögum, og hina
nokkuð sunnan við upptök Vesturdals, og svo
norður í Runu. Tók sú ferð 22 klukku-
stundir.
Ekki varð vitað til, að nokkur þeirra kinda,
sem rekin var að Þorljótsstöðum, færist vegna
harðréttis. En þrjár eða fjórar fórust í vatns-
föllum, er þær vildu strjúka heim. Má því
segja, að bændur þessir hafi sloppið vel með
óttann einan og nokkurt erfiði, auk einhvers
hagatolls og fyrirhafnar á Þorljótsstöðum
sem þeir greiddu, og mun þó lítið eða ekkert
liafa verið sett upp.
HÁLF öld er nú liðin frá vori því, sem
hér hefur verið lítillega sagt frá. Þó
stendur það mér enn allglöggt fyrir sjónum.
En ég var þá ungur drengur á Þorljótsstöð-
um.
Eg man liina kuldalegu komu sumarsins,
heyri veðurgnýinn og finn nístandi nepjuna.
Eg sé fjárhópana koma og fara, bælingslegt
og blakkt á lagðinn af löngum innistöðum
þegar það kom, en frjálslegt í bragði og blæ-
fallegt, þegar það fór. Og ég man mennina,
sem gættu þess. Þeir munu nú allir vera
dánir.
Margt liefur skipazt á annan veg hér á
landi á þessu tímabili en þá var, og til bóta.
Meðal annars geta bændur nú að mestu
horft kvíðalausir til komandi vora, livert sem
þau geyma gæði eða hörku í skauti sínu.
Veldur því stórvirkur vélakostur til jarð-
ræktar og heyjaöflunar, sem nú er fenginn
en áður var óþekktur hér, svo og tilbúinn
útlendur áburður. Þá eru og ýmiss konar
fóðurvörur að jafnaði fáanlegar nú, sem
áður voru lítt eða ekki til hér. Loks hafa
bændur, víðast hvar, skipulagt svo atvinnu-
mál sín, á grundvelli samtaka og samvinnu,
að afkoma þeirra má teljast tryggð, þó að
út af bæri með árferði. Hinu er ekki að neita,
að köld vor valda enn, og munu ætíð valda
ýmiss konar óþægindum og auknu erfiði í
sveitum landsins.
OG enn í dag verður mér litið yfir þessar
sömu sveitir og dali, sem höfðu gæfuna
með sér fyrir 50 árum. Nú kem ég þar að
auðum fjárhúsum og enga sauðkind er að
sjá þar neins staðar í högum úti. Hverju
sætir þetta? Hefur veldissproti Norðra kon-
ungs náð liingað og lostið byggir vorar
22