Samvinnan - 01.12.1950, Side 11
Við Bleiksá. Vatnslitamynd.
Lómagn tipiir. O liumáIverk.
Reykjavík og hóf hjá honum nám í
málaraiðn. Var hann Við námið í
þrjú ár, en upp úr því var hann oft
heima í Múlakoti á sumrin en í
Reykjavík vetur- vor og haust.
1 RIÐ 1927 var sérstakt happaár
fyrir Ólaf. Þá kom danski mál-
arinn Johannes Larsen hingað til
lands á vegum Gyldendalsútgáfunnar,
til að teikna myndir af sögustöðum
í íslendingasögunum. Var Ólafur ráð-
inn sem fylgdarmaður og túlkur Lar-
sens. Fylgdist hann með þessum fræga
fjónska málara víða um land bæði
sumarið 1927 og 1930 og mátti hann
sjálfur mála eins og hann lysti á þess-
um ferðalögum. Telur Ólafur, að
þessi ferðalög liafi orðið sér til mik-
ils góðs og að hann hafi lært sérstak-
lega mikið þessi sumur, enda er Lar-
sen að Ólafs dómi einn snjallasti teikn-
ari, sem hann hefur kynnzt.
Það var meðfram fyrir áeggjan Lar-
sens, að Ólafur réðist til utanfarar ár-
ið 1928. Stundaði hann nám í Lista-
háskólanum í Kaupmannahöfn vet-
urna 1928-29 og 1930-31.
Allt frá árinu 1927 og fram til
1934 málaði Ólafur mikið og hélt
sýningu svo að segja árlega. En síðan
hann tók við búinu og gistihúsinu í
Múlakoti hefur tíminn til að þjóna
listinni orðið lítill. Sérstaklega á þetta
þó við um fyrstu árin, en undanfarin
þrjú til fjögur ár hefur Ólafur aftur
getað sinnt mest megnis því starfi,
sem honum hefur verið hugleiknast
um ævina.
Ólafur hefur alla tíð málað mikið
af vatnslitamyndum og halda sumir
því fram, að hann njóti sín bezt í
vatnslitamyndum. En hann hefur
einnig málið geysimörg olíumálverk.
Náttúrufegurðin í Múlakoti er land-
fræg, enda hefur Ólafur alltaf haft
næg verkefni þar. Þótt hann hafi
ferðazt og málað víða, þá hefur það
ekki verið af skorti á fögrum stöðum
til að mála. Hlíðin, Eyjafjöllin, Jök-
ullinn, Bleiksárgljúfrið og garður-
inn heima við bæinn, eru ærin verk-
efni fyrir listfengan mann.
BÓNDINN Ólafur Túbals hefur
eins og gengur orðið að glíma
við marga búmannsraun. Vikurfallið
úr Heklu 1947 er þó stærst þeirra.
Þá fóru tún og engjar í Múlakoti og
nágrenni undir svarta ösku. Bjóst
Ólafur þá við að þar með væri búið
með búskap sinn og gistihúsrekstur,
(Framhald á bls. 23)
Frá Þingvöllum. Olíumálverk.
Frá Hafnarfirði. Vatnslitamynd.
11