Samvinnan - 01.12.1950, Blaðsíða 16
St. Pétur — hugmyndir listamanna
Bellini, 1430-1516.
Giiirlandaió, 1449—1494.
Caravaggio, 1569—1609.
I 'elasques, 1399—1660.
El fírcco, 1542-1614.
llembrandt, 1605—1669.
SÍMON - kallaður PÉTUR
Nýr fornleifafundur í Páfagarði minnir á mann og
sögu, „sem enginn gæti hafa húið til"
e
nginn maður hefði getað búið Pétur postula
til eða fundið hann upp. Mér hefur alltaf virst
saga hans vera ein megin sönnunin fyrir áreið-
anleik guðspjallanna. Ef einhver ætlaði að búa
til sögu Messíasar, þá gæti hann naumast lát-
ið hann velja sér að leiðtoga lærisveina sinna
mann, sem bæði reyndist heimskulega áhrifa-
gjarn og algerlega staðfestulaus. Þegar braut-
ryðjandi nýrrar hreyfingar hagar sér eins og
Pétur gerir, mætti gera ráð
fyrir að hreyfingin rynni út
í sandinn eða foringinn yrði
fyrir alvarlegri gagnrýni. En
hvorugt þetta varð hlutskipti
Péturs. Hvers vegna?
Við vitum sáralítið um Pét-
ur postula; mest af því, sem vitað er um hann
er að þakka Nýja Testamentinu. Hann hét
Symeon, sem á grísku varð Simon, og það var
Jesú sjálfur, sem gaf honum viðurnefnið Kefas,
eða Pétur (sem þýðir klettur), en það var ekki
þekkt áður sem mannsnafn. Markús segir, að
Pétur hafi verið giftur og búið í Kapernaum
ásamt Andrési bróður sínum og tengdamóður
sinni og Lúkas telur hann hafa verið fiski-
mann og hafa verið félaga Jóhannesar og Ja-
kobs Sebedeussona. Þetta gefur í skyn að Pétur
liafi verið sjálfstæður maður og rekið eigin at-
Höfundur greinar þessar er CHRI-
STOPHER HOLILS, þekktur brezk-
ur biblíufræðingur og ritstjóri. —
Hann er líka þingmaður og fylgir
íhaldsflokknum.
vinnu, þó í smáum stíl hafi veriðr
líkt og smákaupmaður eða smábóndi
á okkar dögum. En hann hefur ekki
verið öreigi eða unnið hjá öðrum.
Hann talaði sveitamál og æðstu
prestarnir saka hann og Jóhannes um
að þeir séu „ólærðir menn“. (Post.
IV., 13). Þetta útaf fyrir sig, sannar
þó næsta lítið, því æðstu prestarnir
voru þarna að finna
að því, að þeir, sem
leikmenn, væru að
prédika um gyðing-
lega guðfræði, sem
þeir e i n i r hefðu
heimild til að út-
skýra og kenna. Æðstu prestarnir
hefðu því talið alla leikmenn, sem
leyfðu sér slíkt, ólærða menn. En sveit-
in umhverfis Kapernaum var þétt-
byggð og fólkið þar hafði talsverð
kynni af umheiminum. Hver sá mað-
ur, sefn þar rak sjálfstæða atvinnu,
hlaut því að vera eitthvað veraldarvan-
ur og ekki alger heimalningur. Pétur
liefur sjálfsagt verið ómenntaður í
grískum fræðum, en hann hefur vafa-
laust talað grísku meira eða minna.
16