Samvinnan - 01.12.1950, Page 24
KONURNAK OG SAMVINNAN
Jólaskraut
FLESTAR konur hafa gaman af
að útbúa ýmislegt gott og
skemmtilegt til jólanna. Margar
hverjar leggja á sig mikið aukastarf
og erfiði til þess að gera hátíðina
sem ánægjulegasta fyrir alla heim-
ilismenn. Það má með sanni segja,
að það sé orðin föst venja að hafa
mikið fyrir jólunum. Enginn má
„klæða köttinn", það þarf að sauma
og prjóna, baka og búa út mat, og
allar hreingerningar ná hámarki
fyrir jólin. Jólaundirbúningurinn
getur orðið ánægjulegur ef allir
hjálpast að og skynsamlega er á
spilunum haldið. Það þarf að skipu-
leggja allt það, sem á að gera, og
það þarf að byrja snemma, svo að
annríkið verði ekki alltof mikið
síðustu dagana og húsmóðirin yfir-
og jólaskap
buguð af þreytu, þegar jólahátíðin
hefst.
ALLAR húsmæður hafa gaman
af jólaskrauti af ýrnsu tagi
og yndi af að skreyta heimili sín
yfir hátíðina. Ýmis konar jólaskraut
er hægt að gera heima og útbúa
ýmsa smáhluti með litlum tilkostn-
aði og ekki mikill fyrirhöfn, en sem
engu að síður koma manni í jóla-
skap og gera sitt til þess að setja
jólasvip og stemningu í húsið. En
það er ekki bara hið ytra og sýni-
lega skraut, sem gerir jólin að há-
tíð. Við megum aldrei verða svo
uppteknar af jólaskrauti, gjöfum og
undirbúningi, að jólaboðskapurinn
gleymist. Þá fyrst eignumst við
sanna „gleðinnar hátíð“, ef okkur
tekst að láta jólaboðskapinn ríkja
á heimilinu.
C SAMBANDI VIÐ jólaskraut
Iieimilanna er eitt atriði,
sem mig langar að minnast á.
Það er að gera muni þá, eða eitt-
livað af munum þeim, sem skreyta
á með, þannig úr garði að hægt sé
að nota þá ár eftir ár. Það er ótrú-
lega ánægjulegt að sjá sama jóla-
sveininn jól eftir jól — sama
skemmtilega andlitið koma fram á
hverri Þorláksmessu og hverfa aft-
ur af sjónarsviðinu á Þrettándan-
um. Það er að sjálfsögðu ekki bund-
ið við, að þetta sé jólasveinn, þótt
þeir í raun réttri séu eitthvert
allra skemmtilegasta skrautið. —
Margt annað er hægt að útbúa, sem
einnig setur jólasvip á húsið og má
t. d. nefna jóladúka, jólaveggteppi,
jólapúða, jólaborðskraut, jóla-
stjörnur, jólabjöllur og þar fram
eftir götunum.
Það hefur mikla ánægju í för
með sér og eykur á þokka heim-
ilisins og jólaskap fjölskyldunnar
24