Samvinnan - 01.12.1950, Blaðsíða 27
miðlari að selja sem mest beint frá
skipshlið, |í heilum bílhlössum, ftil
þess að spara fyrirhöfn, kælihúsleigu
og annan kostnað af þeim hluta farms-
ins. Það sem eftir verður óselt af
farminum er svo sent í kæliliús hing-
að og þangað um landið í vörslu
hinna ýmsu vörumiðlara, sem selja
svo fiskinn smám saman. Ef birgðir
berast nokkuð reglulega að heiman
er fiskurinn verðlagður með það fyr-
ir augum að alltaf sé til fiskur að
selja, og auðvitað reynt að selja sem
mest þegar verðið er hagstæðast.
Nýfundnalandsmenn, Kanadamenn
og nú síðast Norðmenn, liafa svipað
sölufyrirkomulag og hefur það þótt
gefast allvel. Sennilega tekur sölu-
fyrirkomulag SÍS líka mynd að lok-
um.
Þetta sölufyrirkomulag hefur ver-
ið gagnrýnt all harðlega í íslenzkum
blöðum öðru hverju. Sú gagnrýni
hefur þó ekki haft við rök að styðj-
ast í aðalatriðum, þó að ýmislegt megi
auðvitað að finna, eins og verða vill.
Ef New York skrifstofurnar fá góða
vöru til að selja, þá er ég í litlum
vafa um að við eigum mikla fraintíð
á ameríska fiskmarkaðinum. En vöru-
vöndun er höfuðskilyrði. Það er á
allra vitorði að vöruvöndun okkar
hrakaði mjög á stríðsárunum, og höf-
um við ekki enn þá beðið þess bætur.
Hefur þetta orðið einna nrest áber-
andi í saltfiskverkun, einkanlega af
þvf að þar áttum við úr hæstum söðli
að detta. En freðfiskverkunin stend-
ur einnig til bóta, og það er hags-
munamál allrar þjóðarinnar, og þó
sérstaklega þeirra, sem við fiskinn
vinna, að úr rætist hið fyrsta. Það
er ekki nóg að útflutningsskrifstofurn-
ar í Reykjavík og fiskmat ríkisins
skilji hvað í húfi er.
Þegar öllum, sem að framleiðslunni
vinna, — framkvæmdastjórum, verk-
stjórum, sjómönnum og verkafólkinu
í frystihúsunum — er orðið það Ijóst,
að þeirra eigin hagsmunir eru ná-
tengdir vinnuafköstum og vöruvönd-
un, þá er frystiiðnaðinum okkar vel
borgið. Þessi orð má ekki skilja svo,
að eg álíti hraðfrysta fiskinn okkar
verri vöru en fisk keppinauta okkar.
Eg álít að hann sé það ekki. En það
er engin afsökun, því að fiskurinn
okkar getur verið og á að vcra bezti
fiskurinn á hverjum markaði.