Samvinnan - 01.02.1955, Síða 4
VILJANS MERKI
samvinnukvikmyndin nýja
í fyrrasumar var rauðlitur stór-
jeppi tíður eða jafnvel stöðugur gest-
ur á íslenzkum þjóðvegum. Hann fór
víðsvegar um Suður- og Vesturland,
Borgarfjörð og Norðurland allt, eftir
þjóðbrautum og upp í afdali. Hann
fór tólf sinnum yfir Vaðlaheiði og tíu
sinnum austur yfir fjall frá höfuð-
staðnum. Hann fór samtals um 8000
kílómetra með sömu farþega: þrjá
Svía og einn eða tvo fylgdarmenn
þeirra.
Samræður inni í jeppanum snerust
oft um litkvikmyndir og blessaða sól-
ina, sem litkvikmyndir þrífast á. Þess-
ir þrír Svíar voru til íslands komnir
til að taka kvikmynd af landi, þjóð
og sérstaklega samvinnustarfi lands-
manna. Þeir höfðu tveggja mánaða
viðdvöl og áttu að festa sem mest og
bezt af því, sem myndefni var talið, á
filmur sínar, svo að úr því mætti gera
þriggja stundarfjórðunga kvikmynd.
Þessi kvikmynd er nú fullgerð og
hefur fyrir nokkru verið frumsýnd
fyrir liðlega þúsund Reykvíkinga. Ber
myndin nafnið „Viljans merki“ og
hefur vakið ánægju þeirra, sem séð
hafa. Mun fræðsludeild SIS nú gang-
ast fyrir því, að myndin verði sýnd á
vegum kaupfélaganna víðs vegar um
landið á næstu mánuðum.
Elner Ákesoti tekur kvikmynd af Lókastaðarétt.
Því munu fáir trúa, sem ekki þekkja
til kvikmyndagerðar, hversu mikil
vinna hefur verið lögð í þessa kvik-
mynd og hversu langan aðdraganda
tilvera hennar átti. Skal því freistað
að gera nokkra grein fyrir sögu mynd-
arinnar, ef einhverjum lesendum þætti
í því fróðleikur.
Hugmyndin um þessa mynd er
álíka gömul og ákvörðunin um að gera
kvikmynd eftir skáldsögunni Sölku
Völku. Sú mynd var gerð af sænska
félaginu Nordisk Tonefilm, en einn af
höfuðeigendum þess félags er KF,
4