Samvinnan - 01.12.1957, Síða 5
hæð í því skyni. Voru þá aðallega
hafðir í huga tveir gluggar \ kórnum.
Þegar þetta gerðist höfðu lista-
mennirnir Guðmundur Einarsson frá
Miðdal og Finnur Jónsson verið
fengnir til að gera teikningar að
steindum glermyndum í þessa glugga.
Þóttu þær góðar og mönnum varð
Ijóst að ekki mátti við svo búið
standa og var ákveðið að koma upp
glermálverkum í alla glugga kirkjunn-
ar. Er skemmst frá því að segja að
það var gert og árangurinn varð sá,
að kirkjan gerbreyttist hið innra. Nú
er hún hið fegursta hús. Sérstaklega
er fagurt að sjá inn í kirkjuna, þegar
sólskin er og litskrúðið varpast inn í
hana og um djúpar, hvítar glugga-
kisturnar.
Kostnaðarhlið þessa máls var vel
borgið á þann hátt, að þar lögðust
margir aðilar á eitt. Sérstaklega ber
að þakka alþingi og ríkisstjórnum,
svo og einstökum velunnurum Bessa-
staðakirkju og fyrirtækjum, sem létu
fé af hendi rakna til kirkjunnar í
þessu skyni.
Þeir Guðmundur og Finnur voru
ráðnir til að halda áfram með teikn-
ingarnar. Þar sem um er að ræða
sambærileg verk í erlendum kirkjum,
eru það oftast myndir úr Biblíunni. í
Bessastaðakirkju var hinsvegar á-
kveðið að koma skyldu myndir úr ís-
lenzkri kirkjusögu, en 2 úr Biblíunni.
Myndirnar úr kristnisögunni eru á
þá lund, að fremst í kirkjunni er
mynd af þeim atburði, er kristnir
menn komu fyrst til Islands svo vit-
að sé. Það eru hinir írsku munlcar,
eða Paparnir, sem svo eru nefndir.
Sú mynd er í litum á forsíðu þessa
blaðs og geta menn nokkuð af henni
ráðið, hvemig glugginn er. Hinsvegar
gefur Ijósmynd, þó í litum sé, hvergi
fulla hugmynd um fegurð lista-
verksins, þar sem áhrif birtunnar í
gegn um glerið verður ekki höndlað
nema með því að sjá gluggana. Pap-
arnir em á skipi og hafa þar með sér
geitur, en þær eru í fornum bókum
oftlega nefndar munkafé. Þeir koma
að landi gjósandi eldfjalla, en það er
aðeins „symból“ fyrir ísland.
Næsti atburður úr kristnisögunni
er kristnitakan á alþingi árið 1000.
Þar stendur Þorgeir Ljósvetninga-
goði eftir að hafa hugsað málið vand-
lega og komizt að viturlegri niður-
stöðu. Bak við hann sést þingheimur,
þar er hinn kristni flokkurinn og hafa
sumir krossmörk. Aðrir halda vopn-
um á lofti, albúnir þess að berjast,
enda hefur oft verið barizt á Islandi,
þegar minni mál voru á döfinni en
það, að landslýðurinn skipti um trú-
arbrögð og lífsskoðun. En Þorgeir sá
af skarpskyggni sinni að óeining í
þessu höfuðmáli kostaði algjör frið-
slit og það hefur að minnsta kosti
bjargað mörgum mannslífum, að Þor-
geiri var fengið úrskurðarvald í mál-
ínu.
Þá kemur Jón biskup Arason. Jón
er einn af höfuðskörungum íslenzkrar
kristni og á myndinni er hann í full-
um biskupsskrúða og sín hvorum
megin við hann standa kórdrengir.
Jón Arason er raunverulega eini ís-
lendingurinn, sem barizt hefur fyrir
trú sína og nálægt þrem öldum eftir
að hann var tekinn af lífi í Skálholti,
hlotnaðist honum sá heiður, að Jón
Sigurðsson nefndi hann „Síðasta ís-
Iendinginn“.
Þá koma tveir biskupar, báðir af-
burðamenn í íslenzkri kristnisögu.
Guðbrandur Þorláksson er fulltrúi
fyrir Hólabiskupa. Guðbrandur var
baráttumaður fyrir alhliða framför-
um og siðabót. Hann lét prenta bib-
líu þá, sem síðan hefur verið við
hann kennd og skar sjálfur út upp-
hafsstafi. AIls gaf hann út 90 rit, stór
Kristur á krossinum. Tréskurðarmynd í fullri lík-
amsstœrð eftir Ríkarð Jónsson. Myndin er á hlið-
arvegg í Bessastaðakirkju.
Þorgeir Ljósvetningagoði kveður upp urskurðinn
d alþingi drið 1000.
og smá. Guðbrandur var gæddur vík-
ingslund eins og Jón Arason, hann
var atorkumaður, sem alltaf fylgdi
stormur og starfsemd.
Hinn fimmta gluggann prýðir
mynd af Jóni biskupi Vídalín. Hann
er fulltrúi Skálholtsbiskupa, enda
höfuðskörungur þeirra í Lútherskum
sið. Jón biskup hefur allra kenni-
manna bezt náð tökum á orðsins list.
Vídalínspostilla var um langt skeið
lesin á hverju heimili landsins. Ræð-
ur hans vera vott um andríki, gáfur,
lærdóm og mikla skapsmuni. Uppi-
staðan í prédikunum hans eru hinar
skelfilegu afleiðingar syndarinnar og
hinsvegar dýrð náðarinnar.
Það þótti viðeigandi að sjötti glugg-
inn og sá síðasti með myndum úr
kristnisögu íslendinga, væri helgaður
mesta trúarskáldi þjóðarinnar, Hall-
grími Péturssyni. Sálmaskáldið í
Saurbæ og Passíusálmar hans eru öll-
um íslendingum hugstæðir og enn
þann dag í dag er útfararsálmur hans,
„Allt eins og blómstrið eina“, sunginn
yfir moldum flestra íslendinga. I
kórnum eru tveir gluggar með mynd-
um úr Biblíunni. Onnur er af Kristi,
þar sem hann flytur fjallræðuna, en
hin er af Maríu með bamið.
Mikið vandaverk er að vinna
SAMVINNAN 5