Samvinnan - 01.12.1957, Side 7
Hallgrímur Pétursson, sálmaskáld.
myndarhlutarnir, lagðir í blýramma
með vatnsþéttu efni.
Til styrktar myndinni í heild, er
komið fyrir í henni grind úr ryðfríu
stáli og svo er glerið og blýið bundið
við stálrammana með eirböndum.
Myndirnar voru fluttar hingað í
stykkjum og settar saman á Bessa-
stöðum.
Það skal tekið fram, að teikningar
þeirra Finns og Guðmundar voru á
sýningu í Dublin á Irlandi og fengu
þar mjög lofsamlega dóma. Þessar
myndir eru hinar fyrstu sinnar teg-
undar á Islandi.
Aðrar endurbœtur á kirkjunni.
Menntamálaráð lagði fram sinn
skerf við endurbætur á kirkjunni og
lánaði þangað geysistóra altaristöflu,
sem Guðmundur heitinn Thorsteins-
son málaði. Hún sýnir Krist við líkn-
arstörf. Aður var á gafli kirkjunnar
fögur og tilkomumikil tréskurðar-
mynd af Kristi á krossinum, eftir Rík-
arð Jónsson. Sú mynd var flutt á hlið-
arvegg og nýtur sfn mjög vel þar. Nýtt
altari var sett í kirkjuna. Það teikn-
aði Gunnlaugur Halldórsson, arki-
tekt. Altarisklæðið af gamla altarinu
var notað, enda mjög fagurt. Frú
Unnur Ólafsdóttir hefur unnið altar-
isklæðið úr íslenzkum hör, sem Ge-
orgía Björnsson, forsetafrú, ræktaði á
Bessastöðum. Frú Sigrún Jónsdóttir
gerði viðbót við altarisklæðið og alt-
arisdúk. I altarisklæðinu eru stafirnir
IHS (I hendi skaparans) notaðir
sem mynstur.
I gráturnar var komið fyrir mynd-
um úr smíðajárni. Myndirnar teikn-
uðu þeir Guðmundur og Finnur, en
smíðin fór fram í vélsmiðjunni Sindra.
Þessar myndir eru tákn guðspjalla-
Finnur Jónsson er fœddur aö Strýtu i Háls-
þinghá 15. nóv. 1892. Hann ólst upp i föðurgarði
fram d fullorðinsár og stundaði ýmist sjóróðra
á opnum bátum, eða smiðar með föður sinum,
sem var orðlagður hagleiksmaður. Finnur fór til
Reykjavikur 1915 og lagði stund á gullsmiði hjá
Jónatan Jónssyni. Samtimis fékk hann tilsögn
i teikningu hjá Rikarði bróður sinum og Þór-
arni B. Þorlákssyni, listmálara. Finnur lauk prófi
i gullsmiðinni, en var um leið ákveðinn i að
leggja hana á hilluna og gerast listmálari.
Finnur nam siðan málaralist i Kaupmanna-
höfn undir handleiðslu frægra kennara. Siðar
hélt hann til Þýzkalands og var við nám i Berlín
og Dresden allt til 1925. Um pœr mundir var
mikill gróandi i listalifi Þýzkalands. Finnur
lagði pá stund á abstrakt list og hélt fyrstu sýn-
ingu, sem hér hefur verið haldin á abstrakt list
árið 1925. Siðar sneri hann sér meira að verk-
efnum úr atvinnulifi, pjóðlifi og þjóðsögum.
Finnur hefur haldið tnargar sjálfstœðar sýningar
og tekið þátt i sýningum hér heima og erlendis.
mannanna. Eins og ýrnsir kirkjunnar
menn hafa áður bent á, er mikill
skyldleiki með þessum myndum og
lýsingunni á landvættunum íslenzku.
Gluggarnir í Bessastaðakirkju voru
vígðir á hvítasunnudag 1957. Asgeir
Ásgeirsson, forseti, ávarpaði sam-
komuna og rakti sögu málsins. Hann
lauk máli sfnu á þessa leið:
„Það var afráðið, að ein persóna
(Framh. á bls. 51).
SAMVINNAN 7