Samvinnan - 01.12.1957, Side 10
ee m m m
i n1111111 i 11 ^ iTrrrm-r^
m m E2 m o m
m ora EHB M
Það eru ekki þessar byggingar, sem
mesta athygli vekja hjá Guðjóni
Samúelssyni, heldur tvær tilraunir,
sem hann gerði og munu ávallt verða
taldar miklir viðburðir í íslenzkri
húsagerð. Annað va-r tilraun hans til
að endwrvekja gamla sveitabæjastíl-
inn eða bwrstastíllinn í steinsteypu, en
hitt voru byggingar hans í svonefnd-
um hamrastíl, þar sem hann notaði
fyrirmyndir beint úr íslenzkri nátt-
uru.
Enginn neitar því, að hinir gömlu,
íslenzku torfbæir eru fagrir og falla á
aðdáunarverðan hátt inn í landslag-
ið. Það var því eðlilegt, að jafn þjóð-
legum manni og rammíslenzkum sem
Guðjóni Samúelssyni, dytti í hug að
reyna að byggja sveitabæina úr var-
anlegu efni, steinsteypunni, en halda
útliti þeirra. Þannig hugðist Guðjón
bjarga eða endurnýja þúsund ára
arfleifð þjóðarinnar.
Guðjón reyndi fyrst að taka ein-
falda baðstofu og láta steypa húsið,
en hlaða síðan utan við hliðarnar og
setja torf yfir. Gerði hann nokkrar
teikningar af slíkum bæjum og er sú
af prestssetri fyrir Reykholt veiga-
mest. En lítið sem ekkert var byggt
af þessu, enda mun það fljótlega
hafa orðið honum og öðrum Ijóst, að
steinsteypan og grasið áttu illa sam-
leið. Bærinn á ÞingvöIIum er þó
dæmi um slíkt hús, sem landsmenn
mundu sjá eftir, en þar varð að taka
grasið af þakinu og setja koparþak í
staðinn.
Fleiri byggingar Guðjóns sýna meiri
eða minni áhrif frá burstum sveita-
bæjanna. Þar á meðal eru nokkur í-
búðahús í Reykjavík, „bankahúsin“
svonefndu við Framnesveg, Kolviðar-
hóll og Litla-Hraun, Valhöll á Þing-
völlum og síðast en ekki sízt Laug-
arvatnsskóli. Þessi síðastnefnda bygg-
ing tókst svo vel, að eftir bruna var
hún nýlega endurreist í sama stíl og
munu flestir landsmenn vilja hafa
Laugarvatnsskóla með þessu gamla
sniði. Þrátt fyrir það verður ekki
annað sagt en að tilraum, Guðjóns
Samúelssonar með að bjarga gamla
sveitabœjarstílnum inn á öld stein-
steypunnar hafi misheppnazt. Það
skildi hann manna bezt sjálfur, og
leitaði hugur hans nú inn á aðrar
brautir.
Hitt er önnur saga, að ný tækni og
ný byggingaefni geta vel komið til
sögunnar og fært gömlu burstimar í
tízku á ný í einhverri nýrri mynd.
HAMRASTÍLLINN.
Guðjón var ekki maður til að láta
staðar numið við það, sem hann nam
í skóla. Hann leitaði nýrra brauta og
heima á íslandi fannst honum þeirra
Menntaskólinn á Laugarvatni. Það sem
setur svip á húsið eru hinar sterku
lóðréttu linur í aðalinnganginum og
turn þar ojan á í hamrastíl, sem
minnir á Gullkistu á Laugardalsfjöll-
um. Turninn og hátíðasalurinn til
vinstri hafa orðið umdeildir og ekki
er víst að byggingin beri endanlega
þennan svip.
sérstök þörf. Honum fannst landslag
hér á landi frábrugðið öllu því, sem
hann hafði séð annars staðar. Fjöllin
eru skörp og nakin, skóglaus. Þau em
nær alls staðar nálæg.
Guðjóni fannst umhverfi bygginga
hér á landi vera gerólíkt því, sem er
víðast erlendis, vegna skógleysisins.
Allt þetta hjálpaðist til að ýta hon-
um út á þá braut að byggja í sem
mestu samræmi við íslenzka náttúm
og taka tillit til þess, hvernig um-
hverfi bygginganna er hér á landi.
Árangurinn varð svonefndur „hamra-
stíll“ Guðjóns, en frægust bygginga í
þeim stíl er Þjóðleikhúsið. Það er
reist í anda þjóðsagnanna eins og til-
komumikið fjall, með álfaborgum og
ævintýraheim, þegar inn kemur, eins
og þjóðtrúin taldi öldum saman fjöll-
in vera.
Stuðlabergið, sem sjá má víða um
land, hafði sérstök áhrif á Guðjón.
Hann hefur sjálfur sagt svo frá, að
stuðlabergshamrar við Hofsós í
Skagafirði hafi gefið sér hugmyndir
að margvíslegum skreytingum á
byggingum. Þar til má nefna súlurn-
ar utan á kaþólsku kirkjunni, turn-
ana á Akureyrarkirkju, bjargmynd-
irnar utan á leikhúsinu og himininn
í sýningarsal þess, heildarsvið turns-
ins á Hallgrímskirkju hinni miklu og
margt fleira. Gefa þessi einkenni
Þjóðleikhúsið var eftirlœtisverkefni
Guðjóns Samúelssonar og má með
sanni segja. að þar hefur honum
vel tekizt. Byggingin er eins og
hamraborgirnar í þjóðsögunum:
Mikilfengleg og dökk hið ytra, en
björt og fögur hið innra. Hér er
langskurður af leikhúsinu og gef-
ur hann m. a. hugmynd um leik-
sviðsútbúnaðinn og hvernig tjöld-
unum er komið fyrir í turninum.
10 SAMVINNAN