Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1957, Page 13

Samvinnan - 01.12.1957, Page 13
Það er hrífandi að sjá yfir Skaga- fjarðarhérað af veginum á Vatns- skarði, þegar veður og skyggni er gott. Þetta hérað er svo fagurlega af- markað í eina heild á rennisléttu gróðurlendi milli sviptiginna fjalla. Skagafjörðurinn hefur alveg sérstaka töfra, enda hafa skáldin lofsungið hann flestum héruðum meira. Ber þá tvennt til, að skáldgáfa hefur lengi legið þar í landi og mörg skáld fædd þar og uppalin og svo hitt, að feg- urð héraðsins og saga hefur orðið mörgum bragarsmiðnum að yrkis- efni. BLÁIR ERU DALIR ÞÍNIR------------ Sérstöku ástfóstri hafa Skagfirðing- ar tekið við kvæði Matthíasar, „Skín við sólu Skagafjörður“. Má segja, að það sé þjóðsöngur héraðsbúa, enda hafa fáir gert betur og hraustlega hefur andinn þá komið yfir kempuna Matthías Jochumsson. „Komstu skáld í Skagafjörð“, kvað Stephan G. Hann var fæddur í Skagafirði, og bernskuslóðirnar voru honum hug- stæðar í fjarlægri búsetu vestur í Klettafjöllum. Honum hefur nú verið reist minnismerki við veginn á Stóra Vatnsskarði og var það að verðleik- um. Bólu-Hjálmar var Skagfirðingur svo að segja alla sína ævi. Að vísu liggur ekki eftir hann til muna af lofkvæðum um héraðið, en þeim mun meira af mergjuðum skammarvísum um Blönduhlíðina og Akrahrepp og það er nokkur tilbreyting í því. „Hafðu nú Akrahreppur grey, heila þökk fyrir meðferðina,“ segir Hjálmar í háðungarskyni í hinu fræga um- kvörtunarkvæði sínu. Hjálmar átti jafnan í erjum við sjálfan sig og um- hverfið og líklegt að svo hefði orðið, hvar sem hann hefði átt heima. „Bláir eru dalir þínir, byggðin mín Efsta myndin: Séð yfir Skagafjarðarhérað af hœð- inni fyrir ofan Varmahlíð. Fyrir neðan brekkuna eru gróðurhús og byggingar í Varmahlíð. Hús- eyjarkvísl bugðast eftir rennisléttum Hólminum og fjarst eru Blönduhlíðarfjöll. Myndin í miðið: Reynistaður í Skagafirði, fornt jarlsetur og höfuðból að fornu og nýju. Héraðs- vötn og Hegranes sjdst í baksýn. Neðst: „Þar ris hún Drangey úr djúpi, dunar af fuglasöng bjargið, og báðum megin beljandi hvalaþröng." SAMVINNAN

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.