Samvinnan - 01.12.1957, Qupperneq 14
Glaumbœr í Skagaíirði. Þar hafa Skagfirðingar komið upp byggðasafni.
Baðstofan í Glaumbœ. Askar standa á hillum og tóvinnuverkfæri liggja á uppbúnum rúmum.
Lengst sér inn i ,,heimasætukamesið.“
í norðrinu“, segir Hannes Pétursson
frá Sauðárkróki, Af skagfirzkum nú-
tímaskáldum ber hann hæst ásamt
Indriða G. Þorsteinssyni, sem les-
endur Samvinnunnar þekkja af Blá-
störinni frægu og fleiru góðmeti.
Því hefur verið haldið fram, að
Skagfirðingar væru gleðimenn, gefnir
fyrir konur og vín, hesta og söng.
— Skagfirzt blóð er í þeim öllum,
sem elska fljóð og drekka vín.
Svo segir hagyrðingurinn Jónas
Jónsson frá Hofdölum og fleiri skag-
firzkir hagyrðingar hafa staðfest
þetta álit. Skagfirðingar eru ríkir af
hagyrðingum og hafa þeir einmitt
margir lagt stund á að lýsa hinum
áður töldu einkennum Skagfirðinga í
snjöllum ferskeytlum.
Á SÖGUSLÓÐUM.
Þegar litast er um yfir Skaga-
fjarðarhérað af góðum sjónarhóli,
blasa við nafnfrægir sögustaðir á öðru
hverju leyti. Reynistaður, Flugumýri
og Örlygsstaðir minna á Gissur jarl,
brennuna og bardagann mikla. Bóla,
þar sem skáldið bjó, Akrar og Víði-
mýri. Þar er nú ein fallegasta torf-
kirkja landsins.
Þá má nefna Miklabæ og ósjálfrátt
rifjast upp sagan urn Solveigu og
hvarf séra Odds. Dularfull og óhugn-
anleg er sú saga, hvort sem sönn er
eða ekki og sjaldan hefur Einari
Benediktssyni tekizt betur upp með
magnaðar lýsingar en í kvæðinu um
hvarf séra Odds í Miklabæ.
BYGGÐASAFN 1 GLAUMBÆ.
í Glaumbæ stendur enn gamli bær-
inn. Hann hefur verið óvenju rúm-
góður og glæsilegur bær, hlaðinn úr
mýrarkökkum eins og mjög tíðkað-
ist um byggingar Norðanlands. I
Glaumbæ hafa Skagfirðingar komið
upp byggðasafni. Það er mjög
skemmtilegt að ganga um þessi gömlu
bæjarhús, það er eins og að hverfa
aftur í tímann, ínn í annan heim.
Þar er óskert svefnhús prestsins með
útskornum lokrekkjum og afgamalli
Borgundarhólmsklukku. Þar er
venjuleg íslenzk baðstofa, gerð af
góðum viðum. Breitt er yfir rúmin og
rokkar og tóvinnuverkfæri standa
þar, eins og fólkið hefði rétt
brugðið sér frá. Ekki skortir á löng
göng í Glaumbæ, sem jafnan voru
þekkt fyrir að vera eftirlætisstaður
drauga. I búrinu standa öll helztu
mjólkurvinnsluáhöld, skyrkymur,
trog, síur og mjólkurfötur. í eldhúsi
hanga pottar yfir hlóðum og gnótt er
af áhöldum í skemmu og úithúsum.
HEIM AÐ HÓLUM.
Merkastur og helgastur allra sögu-
staða í Skagafirði er Hólar í Hjalta-
dal, annar höfuðstaður landsins um
14 SAMVINNAN