Samvinnan - 01.12.1957, Side 15
Gamli bærinn og kirkjan á Flugumýri í Skaga-
firði. Sennilegt er acf bœrinn, sem brendur var
ofan af jarlinum Gissur, hafi verið á sama stað.
margar aldir. Þar er mjög myndar-
lega byggt, en Hólar eru ekki bara
fallegur bær í djúpum dal. Það ligg-
ur eitthvað sérstakt í loftinu þar,
sem fyrirfinnst ekki annarsstaðar. Ef
til vill er það fyrir sögulega meðvit-
und um dýrlinga og andans stór-
menni, hinn helga Jón biskup Ög-
mundsson, Guðmund góða, Guð-
brand Þorláksson, Gottskálk og hetj-
una Jón Arason.
í sumar var hátíðlegt haldið 75 ára
afmæli bændaskólans á Hólum og
þangað kom fjöldi Hólasveina. Svo
voru nefndir lærdómsmenn hins forna
Hólaskóla og höfðu þeir á sér hreysti-
orð. Á Hólum er nú eitt stærsta tún
landsins, nær 90 hektarar.
GÓÐIR FRAMTÍÐAR-
MÖGULEIKAR.
Eftir Skagafjarðarhéraði falla Hér-
aðsvötn og skiptast, þegar niður á
flatlendið kemur. Milli Héraðsvatn-
anna er víðáttumikið flatlendi, frjó-
samt af framburði vatnanna, en vot-
lent víðast. Erfitt mun um upp-
þurrkun á þessu svæði, en takist það,
skapast við það geysimiklir ræktun-
armöguleikar. Utan við Héraðsvötnin
er land víða mjög vel til ræktunar
fallið og vafalaust er þess ekki langt
að bíða, að glæsilegt verður að líta
yfir nýræktir Skagfirðinga á þessum
gróðurlendum.
BÚSKAPURINN I SKAGAFIRÐI.
í Skagafirði er víðast sæmilegur
Bóla í Blönduhlíð. Hér bjó Hjálmar skáld við sult og fátækt til dauðadags 1875. Hér orti hann
flest af sínum kröftugu og andríku Ijóðum.
Víðimýrarkirkja í Skagafirði. Ein fegursta og frægasta torfkirkja á landinu.
SAMVINNAN 15