Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1957, Síða 20

Samvinnan - 01.12.1957, Síða 20
anzaði húsfreyja og harkaði af sér, stóð á fætur, reyndi að ná tökum á röddinni: Það er bezt þú drekkir það, sem í henni er, áður en þú leggur af stað, bætti húu við og bjó sig til að tutla úr Skjöldu þessa fáu dropa. Stóri-Jón hvussaði við og tók slíku fjarri: Ætli ég komist ekki fyrstur vkkar í matinn! sagði hann, — það voru kveðj- urnar. í bæjardvrunum greip hann tóm- an poka og stakk undir handlegg sér. Hann kom í kaupstaðinn að áliðnum degi. — þangað var tíu stunda gangur. Þegar í búðina kom var þar ös og kát- ína; ýmsir þurftu að ná tali af kanp- manni. Það var ekki auðhlaupið að ])ví, og inn fyrir búðarborðið sluppu ekki nema einn eða tveir í senn. Og aðeins stórlaxarnir. Allir aðrir voru afgreiddir yfir búðarborðið, eftir því sem tími vannst til. Þrír búðarmenn önnuðust. af- greiðsluna og höfðu nóg að gera. Stóri- Jón varð þess áskynja, að þeir heimt- uðu skrifaðar pantanir og létu illa við að anza fyrirspurnum um vörur og verð. Hann fékk lánað ritblý, reif sér horn af umbúðarpappír og tók að krota. Hann sá ekki betur en að menn væru afgreidd- ir umyrðalaust; og eitthvað mundu þeir þó skulda; hann var naumast einn um súpuna. Líklega fengju menn það, sem þeir báðu um, af því það voru jól á morgun; enda lítill tími til yfirlegu Eftir allmikil heilabrot bætti kotbóndinn við nauðsynjavörurnar tveimur jólakertum og brúðu. Þau yrðu að vera tvö um hana, litlu greyin; — hann guggnaði á að hafa leikföngin tvö. Þegar að honum kom, rétti hann ein- um búðarmannanna pöntunarseðilinn — eftir að hafa msist hann á gólfið úr óstyrkum krumlunum og þurrkað af honum. Seðillinn var enn læsilegur, — Stóri-Jón vonaði í lengstu lög, að pöntun sín yrði afgreidd sem aðrar, án reki- stefnu. Búðarlokan fetti upp á trýnið og treysti sér vart til að snerta við svo skitnum miða, leit þó á hann sem snöggvast og af honum á bónda, tók að blaða í heilmiklum doðrant, — að því loknu gekk hann rakleitt inn á skrif- stofu. Þá fór Stóra-Jóni ekki að verða um sel, hann þóttist sjá, að hverju dró. Verst, að hann hafði gerzt of djarfur og beðið um óþarfa! Búðarmaðurinn kom aftur að vörmu spori og opnaði hlemm- inn í búðarborðinu, — faktorinn vildi hafa tal af honurn, tilkynnti hann raumnum í lörfunum . . . og veik til hliðar, er hann nálgaðist. Var Stóri-Jón þó ekki mikill á lofti þá stundina; — brúðuna og kertin yrði hann víst að gefa upp á bátinn, hugsaði liann með sjálfum sér um leið og hann staðnæmd- ist rétt innan við dyrnar í skrifstofunni. Búðarherrann leit upp og lét hann vita, svo sem í kveðju skyni, að hann væri skuldugur verzluninni liðugar tvö hundruð krónur. Kotbóndinn bar ekki á móti, að svo gæti verði. Spurningin væri, sagði kaupmaður, hvenær hann hefði í hyggju að greiða þá skuld? Stóra-Jóni varð stirt um svarið, en tautaði þó, að hann mundi greiða hana eins fljótt og hann með nokkru móti sæi sér fært. Ætli það verði nokkurn tíma? hreytti faktorinn úr sér og reis á fætur, rétti bónda pöntunarseðilinn: Að því er ég bezt veit, hlýtur skuld yðar við verzl- unina að teljast töpuð. Mér væri það sönn ánægja, ef þér treystið yður til að sannfæra mig um hið gagnstæða. Þegar þér greiðið okkur — látum okkur sjá: svona helminginn af gömlu skuldinni — skal þessi pöntun yðar verða afgreidd refjalaust . . . einnig kertin og hitt! bætti hann við háðskur. Og nú var honurn farið að hitna í hamsi, hafði óviljandi æst sig upp, sem ekki var óvanalegt: Þangað til ættuð þér að minnsta kosti ekki að leggja í óþarfa, bætti hann við: Að þessu sinni fáið þér ekki neitt nema gegn staðgreiðslu. Anægðari með sjálfan sig settist kaup- maður við skrifpúltið aftur og lét sem hann vissi ekki af kotbóndanum, sem raunar hvergi hafði hreyft sig og loksins fékk málið, en var linur í sókninni. af því að svo mikið lá við: Ég er allslaus heima fvrir með konu og tvö börn, sagði hann — og fékk varla stunið því fram: Og kýrin að þorrna — hún er komin að burði. Kaupmaður átti annríkt við skrif- borðið. Hann lét Stóra-Jón tala við sjálfan sig, gerði sig ekki í einu né neinu líklegan til að anza honum. Og aðfangadagur á morgun, andvarp- aði bóndi. Hvað kemur það mér við, maður minn? spurði faktorinn og sneri sér snögglega við á skrúfstólnum: Sjáið þér ekki, að ég á annríkt? Farið þér til odd- vitans! Vilji hann skrifa upp á pöntun yðar, skal ekki standa á að vörurnar verði afgreiddar — í hreppsreikninginn! Sælir. Skrúfstóllinn skilaði upptekna rnann- inum að skrifpúltinu aftur; bakið, breitt og þrýstilegt, sneri sem fyrr að afdala- bóndanum. En nú var farið að síga í Stóra-Jón; það var ekki blíðurn augum hann leit á bak þess manns, sem hann taldi sig eiga allt sitt undir þá stundina. Til oddvitans mun ég ekki leggja leið mína, sagði hann dimmum rómi og dró ekki af raddstyrknum: Ég ætla ekki að láta slá upp börnunum mínum á hreppa- móti, — það skal enginn fá þau fyrir lægsta boð. Ómagalíf þekki ég af eigin raun. Ég hef alla daga fátækur verið, og var þó á leið að vinna mig upp. Eitt úr- ræði á ég! Enginn er svo öreiga, að hon- um sé ekki frjálst að fara! Bræðin hafði gripið beljakann í lörf- unum verr en hann mundi til; hann var naumast fær um að tala skýrt lengur. — Kaupmaður lét sér hvergi bregða, — vissi ekki af honum. frekar en hann væri Kaupmaðurinn skorðaði sír í sœtinu og sló í þann brúna. 20 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.